Færsluflokkur: Bloggar
18.2.2008 | 10:40
Nýtt úthverfi
Nú hef ég skoðað betur tillögur Skotanna um nýtingu landsins sem Reykjavíkurflugvöllur stendur á. Þær staðfesta það sem haldið hefur verið fram að svæðið verði ekki annað en eitt úthverfið enn. Kosturinn við þær er ekki síst sá að það er alls ekki reynt láta líta út fyrir neitt annað. Annar kostur er sá að varðveita eigi mýrlendi með nýrri tjörn. Og af þeim tillögum sem hafa verið sýndar sýnist ljóst að þessi sé langbest.
Svo er það náttúrlega ekki beinlínis leiðinlegt fyrir okkur sem búum á Akureyri að sami höfundur sé að þessari tillögu og hugmyndinni um síkið sem skeri miðbæ Akureyrar upp í Skátagil - sem vonandi verður fremur að veruleika en það að leggja niður Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.2.2008 | 19:13
Síki eða flugvöllur?
Já, það er nefnilega það. - Kannski komi síki í staðinn fyrir Reykjavíkurflugvöll úr því að hugmyndasmiður hins fræga síkis sem á að koma í miðbæ Akureyrar er búinn að vinna hugmyndasamkeppnina um Vatnsmýrina. Og kannski megi þá bara lengja flugvöllinn á Akureyri enn þá meira ef Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýrinni verður lagður niður.
![]() |
Úrslit í keppni um skipulag Vatnsmýrar kynnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2008 | 09:06
Breytingar í Laugaskóla
Meðal bestu skólaminninga er útgáfa skólablaðsins Járnsíðu sem var gefin út landsprófsveturinn minn í Laugaskóla í Þingeyjarsýslu og félagslífið sem spratt upp í kringum blaðið og nýtt málfundafélag.
Fyrir nokkrum dögum var ég staddur í Laugaskóla, sem nú er Framhaldsskólinn á Laugum þeirra erinda að kynna mér skólastarfið og flytja fyrirlestur um umhyggju í starfi kennara. Þar er nú unnið að þróunarverkefni sem felst meðal annars í breyttu kennsluformi: Einungis helmingur kennslunnar fer fram í svokölluðum fagtímum en hinn helmingurinn í vinnustofutímum þar sem nemendur vinna sjálfstætt að viðfangsefnum námsgreinanna en kennarar leiðbeina þeim. Þetta merkir að kennarar hafa meiri samvinnu en áður og nemendur núna leita til þess kennara sem er staddur hjá þeim hverju sinni hvort sem hann kennir fagið eða ekki. Konráð Erlendsson, Konni, sem kenndi mér í landsprófi forðum rifjaði upp að þannig hefðum við nú haft það þegar kennarar gengu á milli herbergjanna síðdegis á daginn; við hefðum spurt út í hvað sem var og alltaf fengið gagnleg svör! Ég hugsa að það sé alveg rétt hjá honum.
Þetta fyrirkomulag merkir líka að aldrei eru eyður í stundatöflu sem er einn böggull áfangakerfis því að núna skiptast á fagtímar og vinnustofutímar með eðlilegum matar- og kaffihléum; það er líka styttri vinnudagur fyrir vikið. Ef nemi velur fáa áfanga vegna þess að hann treystir sér ekki til að taka fullt nám hefur hann fleiri vinnustofutíma og meiri aðgang að kennurunum. Sem er jákvætt. Þetta fyrirkomulag kalla Laugamenn sveigjanlegt námsumhverfi og líka er notað hugtakið persónubundin áætlun þar sem nemendur geta tekið mismarga áfanga í einu.
Hver einasti dagur byrjar á hálftíma vinnustofutíma kl. 8.30. Margir nemendur vakna fyrr og geta mætt upp úr kl. 8 en aðrir eiga erfiðara með að vakna og eru kannski syfjaðir fyrst í stað. Svo er morgunmatur en þar sem ég kom ekki austur í Laugar fyrr en kl. 11 veit ég ekki hvort þar er sami hafragrauturinn á boðstólum eins og þegar ég var þar fyrir 37 árum. Hins vegar var sprengidagssaltkjötið beinlaust og það get ég fullyrt að saltkjötið á Laugum var ekki í gamla daga. En þar sem þarna er sama eldhús og sami matsalur fékk ég að drekka bollukaffi í sætinu sem ég hafði í landsprófi, alveg út við dyrnar fram í anddyrið. Kennarar sögðu mér að með þessu fyrirkomulagi sé betri mæting í tíma en hefði verið með eldra fyrirkomulagi og nemendur borði nú meira af því að þeir væru duglegri, svæfu t.d. aldrei af sér máltíðir dagsins sem áður hefði komið fyrir.
Lítill framhaldsskóli með um 100 nemendum á undir högg að sækja í reiknilíkaninu sem notað er til að deila út fé til framhaldsskóla. Ég þekki þetta reiknilíkan ekki til hlítar og veit þess vegna ekki hvort þarf að breyta því mikið til að stuðla að því að framhaldsskólar eða deildir á framhaldsskólastigi geti verið á stöðum þar sem framhaldsskóli er ekki til staðar í dag. Það er líka að mörgu að hyggja við breytingar af þessum toga, t.d. að kjarasamningum við kennara sé rétt fylgt.
Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem breytingar verða á Laugum. Laugaskóli var stofnaður sem héraðsskóli 1925 með eins konar lýðháskólasniði en þróaðist yfir í að vera svipaður gagnfræðaskólum þéttbýlisins á þeim tíma sem ég var þar (19691971). Svo kom þar framhaldsdeild og loks varð hann að framhaldsskóla, fyrst í stað með 10. bekkjar deild en svo var hún lögð niður og nú er þar eingöngu framhaldsskóli með náttúrufræði-, félagsfræði- og íþróttanámi. Með þeim breytingum sem nú eiga sér stað bregst Laugaskóli við nýjum aðstæðum og nýjum hugmyndum um hvernig nám fer fram kröfum og hugmyndum upphafs 21. aldar. Þannig hefur Laugaskóli verið til í hartnær öld af því að honum er breytt til að svara kröfum nýs tíma. Reynslan sker úr um hvort breytingarnar nú skila árangri en hugurinn er mikill og það skiptir máli þegar breytt er til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.2.2008 | 18:03
Fljúgandi diskar
![]() |
Ekki hægt að afgreiða flugvélar á Keflavíkurflugvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2008 | 19:28
Reykherbergi á Alþingi
Ég hef undrandi fylgst með umræðum um reykherbergi í húsakynnum Alþingis, réttara sagt undrandi yfir þeirri hugdettu að hafa þar sérstakt reykherbergi. Ég geri ráð fyrir að það verði lagt niður til að skapa gott fordæmi fyrir aðra. Annars las ég í morgun um aukaafurð reykingabannsins: Efnalaugar hefðu minna að gera. Það stemmir alveg við reynslu mína þá sjaldan ég lagði leið mína á skemmtistað sem leyfði reykingar.
Nýjustu fréttir úr RÚV, sex-fréttunum rétt áðan þann 8. febrúar: Reykherberginu verður lokað 1. júní nk. og vonar forseti Alþingis að þeir þingmenn sem reykja noti tímann til að hætta að reykja. Mér finnst þessi ákvörðun vera góðar fréttir.
![]() |
Vill láta loka reykherbergi á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 8.2.2008 kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2008 | 08:41
Gott að hægt er að læra af Íslendingum
![]() |
Nýbökuðum feðrum mismunað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2008 | 18:22
Þarf forseta?
![]() |
Staðfesting laga með SMS? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.2.2008 | 18:03
Dollywood
Var um daginn að hlusta á þátt um Dolly Parton og þá rifjaðist upp fyrir mér ferðalag frá Wisconsin til Atlanta í Georgíu þar sem við komum m.a. við í Dollywood, skemmtigarðinum sem hún lét gera í heimabæ sínum, Pigeon Forge. Reyndar held ég við höfum nú ekki gefið okkur tíma til að fara í skemmtigarðinn heldur fengið okkur eitthvað í gogginn eftir akstur gegnum Stóru-Reykjafjöll og þjóðgarðinn þar. En fyrir þá sem vilja kynna sér Dollywood fylgir tengill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.2.2008 | 08:49
Miðstöð innanlandsflugs í Grímsey
Það er örlítið fyndið að fylgjast með skoðanaskiptum nýja borgarstjórans og Gísla Marteins, leiðtoga sjálfstæðismanna í Reykjavík í skipulagsmálum, um flugvöll í Vatnsmýri. Enginn annar staður hefur fundist á suðvesturhorninu sem er jafngóður fyrir miðstöð innanlandsflugs og Vatnsmýrin, en ekkert er á móti því að kanna sem flest flugvallarstæði. Mörg eru nefnd: Hólmsheiði, Miðdalsheiði, Löngusker, Hvassahraun og Akranes. Að ógleymdri Miðnesheiði.
Mörgum, og þ.á m. held ég líka mörgum Reykvíkingum, þykir eðlilegt að höfuðborgarsess Reykjavíkur fylgi kvaðir með svipuðum hætti og honum fylgja margvísleg forréttindi. Ein slíkra kvaða er væntanlega skyldan til að leggja til land undir miðstöð samgangna, þ.m.t. miðstöð flugsamgangna.
Þá má heldur ekki gleyma þeirri kvöð að nýta vel hið verðmæta land sem félli til ef flugvöllurinn verður færður úr Vatnsmýrinni. Á það reyndi verulega fyrir um þremur árum þegar mikið land var tekið undir hraðbraut, svokallaða Hringbraut, og ákveðið var að leggja til viðbótarland undir Landspítalann rétt fyrir ofan Vatnsmýrina þar sem stefnt er á að reisa ókleifan vegg stórra bygginga. Með þessum tveimur framkvæmdum er komið í veg fyrir að hugsanleg íbúðabyggð í Vatnsmýri geti tengst annarri íbúðabyggð með eðlilegum hætti allra síst gömlu byggðinni milli Tjarnarinnar og Snorrabrautar. Þannig yrði byggð í Vatnsmýri að enn einu úthverfinu sem þyrfti bíla til að komast til og frá.
Þessi slæma landnýting er ein hlið málsins: Er hægt að treysta skipulagsyfirvöldum í Reykjavík fyrir þessu landi ef þau fá það til annarrar ráðstöfunar en nú er? Er ekki hætta á því að það verði nýtt jafnheimskulega? Er ekki orðið of seint að hafa hugmyndasamkeppnina sem mér skilst að fari fram?
Í grein í Morgunblaðinu 5. nóvember 2005 (bls. 34), sem þetta blogg er sótt í, stakk ég upp á því að miðstöð innanlandsflugs væri a.m.k. jafnvel komin í Grímsey og á Miðnesheiði, en í eynni hafði þá nýlega verið lögð Fokkerhæf flugbraut. Grímsey hefur þann stóra kost fyrir Akureyri, Ísafjörð og Egilsstaði að þá er miklu styttra flug til að skipta um vél en núna þarf að skipta um vél í Reykjavík. Ef Grímsey yrði fyrir valinu mætti hafa flug nokkrum sinnum á dag til Keflavíkur til að taka flug til útlanda.
![]() |
Ólafur treystir Gísla Marteini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.2.2008 | 15:37
En konur?
![]() |
Að borða bollu eins og maður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)