Bloggfćrslur mánađarins, mars 2012

Dagskrá um Ţjórsárver í Árnesi 17. mars 2012

Fjörutíu ár eru nú liđin síđan barátta heimamanna í
Gnúpverjahreppi fyrir verndun Ţjórsárvera hófst.

Hinn 17. mars 1972 bođađi landgrćđslunefnd Ungmennafélags Gnúpverja til almenns sveitarfundar um Ţjórsárver og ţá ógn sem steđjađi ađ ţeim vegna hugmynda um risastórt miđlunarlón sem hefđi sökkt verunum. Ţessi atburđur  markađi upphaf varđstöđunnar um Ţjórsárver.

Fundurinn var fjölmennur og stóđ fram á nótt. Ţar kom fram einhugur um ađ vernda bćri Ţjórsárver. Samţykkt var ályktun ţar ađ lútandi, og til er ítarleg fundargerđ. Ţegar hún er lesin, 40 árum síđar, er ljóst ađ ţessi fundur skipti sköpum um framgang mála á ţeim tíma og sennilega alla tíđ.  Baráttan fyrir verndun Ţjórsárvera hefur stađiđ nćr samfellt síđan og margir mikilvćgir áfangasigrar unnist.

Í tilefni ţessara tímamóta bođa Vinir Ţjórsárvera, Áhugahópur um verndun Ţjórsárvera, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands  til afmćlisdagskrár í félagsheimilinu Árnesi.  Skyggnst verđur inn í tíđarandann í Gnúpverjahreppi fyrir fjörutíu árum,  litiđ yfir farinn veg og horft til framtíđar.

Međal framsögumanna eru Birgir Sigurđsson rithöfundur, sem var einn ţeirra sem stóđu fyrir fundinum áriđ 1972, Gísli Már Gíslason prófessor og formađur Ţjórsárveranefndar og Helga Ögmundardóttir mannfrćđingur sem hefur rannsakađ bakgrunn ţess ađ Gnúpverjar tóku sér svo afgerandi stöđu međ
náttúrunni, óbyggđunum og fuglum himinsins. Flutt verđur tónlist og kaffiveitingar verđa á bođstólum.

MEĐ RÚTU Í ÁRNES ?: Ef nćgur fjöldi nćst til ađ leigja rútu, ţá verđur ţađ gert. Viđ biđjum ţau sem hyggjast ferđast međ rútu ađ láta vita á netfangiđ: axel@axel.is í síđasta lagi á miđvikudagskvöld, 14. marsVerđ er 2000-2500,- krónur eftir ţátttöku. Rútan mun fara frá
BSÍ kl. 12:00 ţann 17. mars og stoppa á bensínstöđinni viđ Kringluna (12:05), á N1 í Árntúnshöfđanum (12:10) og á Olís viđ Rauđavatn (12:15). Einnig er mögulegt ađ stoppa í Hveragerđi og á Selfossi ef áhugi er fyrir ţví (látiđ bara vita). Fariđ verđur aftur til Reykjavíkur í síđasta lagi um 16:30. Ţeir sem hafa samband og vilja fara međ rútu verđa látnir vita ef ekki verđur nćg ţátttaka til ađ leigja rútu.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband