Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
12.1.2009 | 13:54
Hvítþvottur?
![]() |
Hvítskúrað stjórnarráð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2009 | 18:24
Sakleysið uppmálað
Stóru fyrirtækin sem heita skrítnum nöfnum eru sakleysið uppmálað. Í yfirlýsingu Exista segir meðal annars: "Varnir á eigið fé er eðlilegur og nauðsynlegur þáttur í ábyrgum rekstri fjármálafyrirtækis. Exista hefur gert samninga um gengisvarnir við alla stærstu viðskiptabankana ... Exista hefur átt í viðræðum við íslensku bankana meðal annars vegna uppgjörs varnasamninga og er enginn ágreiningur um réttmæti þessara samninga ..."
![]() |
Exista stundaði ekki spákaupmennsku" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2009 | 14:24
En fyrirbyggjandi heilsugæsla og forvarnir?
![]() |
Ógnar ekki öryggi sjúklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2009 | 08:52
Hreppaflutningar aldraðra og skerðing þjónustu við geðsjúka
Laugardaginn 9. janúar verður mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg á Akureyri kl 15.00. Við mótmælum hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun dagdeildar geðdeildar, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Og svo á að setja heilbrigðisstofnanir annars staðar á Norðurlandi undir þá stjórn sem hagar sér svona, sbr. nýjasta útspil frjálshyggjuráðherrans Guðlaugs Þórs Þórðarson. Um sameiningu heilbrigðisstofnana er margt að segja og örugglega á eitthvað af því rétt á sér. Þannig vitnar forstöðumaður rekstrar Heilbrigðisstofnunar Austurlands um mikinn sparnað af sameiningu þar fyrir ellefu árum. Hér á Norðurlandi hefur heilbrigðisþjónusta í Þingeyjarsýslu með miðstöð á Húsavík verið sameinuð í áföngum sem hafa tekið marga áratugi. Þar eru heilsugæsla og spítali undir einni stjórn og gefst vel. Í þessari stóru sameiningu á hins vegar ekki að sameina sjúkrahúsið á Akureyri og heilsugæsluna sem væri rökrétt, meðal annars þar sem þjónustu heilsugæslustöðvar utan dagvinnutíma fer fram á sjúkrahúsinu. Og sérfræðilæknisþjónustuna á ekki heldur að sameina, hún skal fara fram úti í bæ. Væri slík sameining ekki vænlegri til bæði betri heilsu og sparnaðar? Og hvað um sérfræðibáknið á höfuðborgarsvæðinu? Það sem er á móti þessari sameiningu hér á Norðurlandi (og annars staðar á landinu), og hefur örugglega verið á móti henni líka á Austurlandi þar sem ég þekki minna til, er að stjórnun þjónustunnar færist fjær fólkinu í héraði, í þessu tilviki til stjórnenda sem eru nákvæmlega núna að skerða þjónustu við aldraða, geðsjúka og ungbörn. Hér á t.d. núna að færa deild aldraðra frá Akureyri fram í Eyjafjarðarsveit í Kristnes, sem er innan sömu stofnunar. Getum við búist við sambærilegum tilflutningum við sameininguna? Við þetta má bæta því að margvísleg samvinna er milli heilbrigðisstofnana á Norðurlandi - en verður hún meiri eða betri eða skilvirkari við sameiningu undir einni stjórn á Akureyri?
Markmið frjálshyggjuráðherrans er hvorki sparnaður né betri heilsa. Honum er kannski ekki sama um þetta, ég veit ekki hvernig hann er innréttaður sem persóna en ef þetta væru markmiðin væri sérfræðibáknið tekið fyrir. Nei, markmið Guðlaugs Þórs er einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar.
Á Ráðhústorgsfundinum á laugardaginn hér á Akureyri mun Rósa Eggertsdóttir taka til máls og í lokin munum við takast í hendur og hugleiða réttlæti. (Nánari upplýsingar um gönguna: Guðrún Þórs, s. 663 2848.)
Bloggar | Breytt 10.1.2009 kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.1.2009 | 12:37
En íslenska ríkisstjórnin?
Af hverju er íslenska ríkisstjórnin ekki tilbúin til þess? Rétt áðan var viðtal við menntamálaráðherra sem vissuleg lýsti áhyggjum af ástandinu, en vísaði á forsætis- og utanríkisráðherra. Standa þau í vegi fordæmingar á framgöngu Ísraels? Er rétt að eiga samskipti við ríki sem hagar sér eins og Ísrael. Aha, núna sendir Ingibjörg Sólrún frá sér fordæmingu í sömu hádegisfréttum! Gott að heyra að hún hefur skelegga afstöðu.
![]() |
Framganga Ísraels fordæmd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.1.2009 | 09:56
Ráðþrota veröld?
Er veröldin ráðþrota? Sættum við okkur við hið glæpsamlega framferði Ísraelsstjórnar?
Útifundur á Lækjartorgi rétt fyrir áramótin var fjölmennur og þess krafist af utanríkisráðherra Íslands að líta á þetta sem árás en ekki "deilu". Fólkið sem býr á Gaza er meira og minna varnarlaust og innikróað. Tilraunir til að hjálpa samfélaginu að verða á ný sjálfbært, sem það var fyrir hernám Ísraels 1967, eru aftur og aftur brotnar á bak aftur með árásum Ísraelshers. Ekkert réttlætir framferði Ísraelsstjórnar.
Fróðlegt væri líka að heyra í fréttum af mótmælum innan Ísraels og hvernig þau eru hantéruð af yfirvöldum þar. Þar hlýtur að búa margt fólk, bæði gyðingar og arabar, sem ekki sættir sig við þetta.
Og les nú í annarri frétt í Mogga að ríkisstjórnir Noregs og Svíþjóðar hafi fordæmt framgöngu Ísraelsstjórnar: http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/01/04/framganga_israels_fordaemd/. Íslenska ríkisstjórnin virðist þó ekki tilbúin til þess. Hvað veldur?
![]() |
Harðir bardagar í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)