Færsluflokkur: Bloggar
23.5.2007 | 06:34
Verkefni fyrir umhverfisráðherra
Það hlýtur að vekja bjartsýni um aðgerðir í umhverfismálum að setja Þórunni Sveinbjarnardóttur í starf umhverfisráðherra, eina þingmann Samfylkingarinnar enn á þingi, sem greiddi atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun. Enda þótt maður eigi enn eftir að heyra af stjórnarsáttmálanum og enda þótt maður hafi fulla ástæðu til að óttast að haldið verði áfram með álverin er rétt að bjóða Þórunni velkomna til starfa - því að hennar bíða ærin verkefni sem ekki verða leyst nema stjórnmálamaðurinn hafi skilning og áhuga á málinu.
Ingibjörg Sólrún gaf Þórunni þá einkunn í gærkvöldi að hún væri merkisberi í umhverfismálum. Ég vona að merkið verði ekki sett niður í einhverja gjótuna á Þingvöllum í dag heldur tekið með til ríkisráðsfundarins þar sem Þórunn heldur því á lofti gagnvart stóriðju- og álverssinnum í eigin flokki og Sjálfstæðisflokknum. Við þurfum aðgerðir í umhverfismálum hvort heldur það er náttúruverndaráætlun, friðlýsing nýrra landsvæða, stækkun friðlýstra svæða, verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá, eftirfylgja með hinum nýja Vatnajökulsþjóðgarði, stefnumótun fyrir vesturhluta hálendisins eða aðgerðir í loftslagsmálum - að ógleymdu fræðslustarfi og vakningu meðal almennings. Listinn er langur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2007 | 07:37
Aflátsbréf hin nýjustu
Í fréttum í visir.is í janúar sl. var sagt frá því að flugfélagið SAS myndi frá og með næsta hausti bjóða þjónustu þar sem byggt er á svipaðri hugmynd og aflátsbréf kaþólsku kirkjunnar á miðöldum. Í fréttinni segir að bréf SAS séu til þess gerð að hreinsa samvisku flugfarþega. Þeim mun gefast kostur á að leggja sautján krónur danskar ofan á fargjaldið. Krónurnar munu svo renna beinustu leið í græn verkefni sem binda samsvarandi magn gróðurhúsalofttegunda og losna við flugferðina. Þannig geta farþegarnir flogið með hreina og strokna samvisku.
Fyrir nokkrum árum seldi myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson aflátsbréf í þremur flokkum frá kr. 2000. Þau bréf eru fáanleg á íslensku, þýsku og ensku eftir því sem fram kemur á vefsíðu hans. Snorri er einnig þekktur fyrir að hætta við að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands og ef ég man rétt var hann foringi vinstri-hægri-snú sem bauð fram til borgarstjórnar í Reykjavík 2002.
Pokasjóður úthlutaði nýlega um 100 milljónum til umhverfis- og mannúðarmála og fleiri málaflokka. Mér skilst að um helmingur af andvirði burðarpoka í mörgum verslunum renni í Pokasjóð en líka að minna sé notað af pokum vegna gjaldsins.
Nú hafa Landvernd og Skógræktarfélag Íslands tekið höndum saman á vefsíðunni kolvidur.isog bjóða fólki og fyrirtækjum að kolefnisjafna útblástursáhrif samgöngutækja sinna með skógrækt. Reiknivél er á vefsíðunni þar sem maður getur komist að því hversu mikið maður hefur mengað. Kaupi maður svokallaða kolefniskvittun verður gróðursettur tiltekinn fjölda trjáa, í mínu tilviki 19 tré fyrir 2.774 kr., á Geitasandi sem er einhvers staðar í Rangárvallasýslu.
Satt að segja fylgja öllum þessum aflátsbréfum og -pokum blendnar tilfinningar: Það er nefnilega ekki til nema eitt gott ráð í baráttunni við mengun andrúmsloftsins og loftslagsbreytingar; það felst í að menga minna með því að aka minna en í stað þess ganga eða nota almenningssamgöngur - nú, reyndar má hjóla líka og svo er gagn að því að nokkrir séu samferða í bíl. Kolefniskvittunin mín breytir alls engu þar. Kostnaðar- og magnvitund um mengunina, t.d. með því að nota reiknivélina á vefsíðunni, er þó undir öllum kringumstæðum mjög gagnlegt að byggja. Skógræktin sjálf eru að einhverju leyti business. Því miður eru engar upplýsingar um Geitasand á vefsíðunni en sandinum var lýst í útvarpsfrétt skömmu fyrir kosningar þannig að mér virtist að þar væri ekki gróðursett í votlendi en þá væri verr af stað farið en heima setið.
Bloggar | Breytt 18.5.2007 kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.5.2007 | 09:37
Náttúruverndin réð mestu
Þrátt fyrir stórsigur VG þá hélt ríkisstjórnin velli með rúmlega 48% atkvæða, nokkurn veginn alveg það sama og "kaffibandalagið". Samanlagt unnu VG og S lítið eitt á - en ekki nóg. Hér munar um þau 3,3% sem Íslandshreyfingin fékk; ef prósentumarkið væri lægra væri stjórnin fallin.
Og ef við lítum á sigur VG og fylgi Íslandshreyfingarinnar - samanlagt tæp 18% - er alveg ljóst að náttúruvernd reyndist sá einstaki málaflokkur sem réð mestu í kosningunum því að S setti líka fram áhugaverða stefnu í náttúruverndarmálum þótt Kristján Möller ætti erfitt með að muna hana þegar kom að því að tala um álbræðsluna við Húsavík. Samt var reynt að þegja um náttúruverndarmálin á endasprettinum. Það var stóriðjustefnan sem varð Framsókn alvarlegasti fjöturinn um fót. Ég skora á nýja ríkisstjórn, hver sem hún verður að taka þessar vísbendingar alvarlega.
Í augnablikinu lítil ástæða til bjartsýni um nýja ríkisstjórn þótt sú gamla segi af sér. En hver veit - kannski er Framsókn til í stjórn með VG og S. Aukin afköst umhverfisráðherra við að friðlýsa er kannski til marks um meiri skilning því að á fimmtudaginn kom hún norður í Eyjafjörð til að friðlýsa tvö svæði, annað á hafsbotni og hitt í Öxnadal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.5.2007 | 19:34
Of langt á kjörstað?
Ég heyrði mjög leiðinlega frétt í dag um að það væri fólk sem væri í rauninni svipt kosningarétti með því að hafa aðeins einn kjörstað í öðrum enda gríðarstórs sveitarfélags. Þannig t.d. fólkið á Jökuldal þyrfti niður í Fellabæ - og ég býst við að með þessu séu þeir sem búa í langstærsta þéttbýliskjarnanum á Héraði, Egilsstöðum, líka hálfpartinn sviptir þeim möguleika að ganga til kjörstaðarins. Fyrir sveitafólkið, þá er byrjaður sauðburður og því getur ekki öll fjölskyldan farið í einu því að það þarf að sinna burðinum. Kosningar hér áður fyrr voru í júní en ekki á sauðburði. Svo ættum við kannski að kjósa fyrr á vorin áður en fólk leggst í ferðalög. Hef reyndar heyrt þetta á fleirum sem eiga langt í kjörstað að það er bara kosið á þéttbýlisstað í öðrum enda sveitarfélagsins. Það þarf að taka það mál rækilega til skoðunar. Kannski ætti að taka upp póstkosningar og skyldu til að kjósa eins og Ástralir sem sekta fólk fyrir að kjósa ekki (leyfa að vísu afsökunarbréf til að losna við sektina).
Á Akureyri kvartar svo fólk undan umferðaröngþveiti við kjörstaðinn; ég hef aldrei ekið hér á kjörstað svo ég veit ekkert um það. Kjörstaðurinn er á gamla vinnustaðnum mínum í Oddeyrarskóla frá 1975-1976. Mér finnst það svolítið flott - stofan sem kjördeildin mín er í var þó ekki til þá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.5.2007 | 08:34
Eru stjórnarflokkarnir úrtaksskekkja?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.5.2007 | 15:58
Fyrsti kjósandi VG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.5.2007 | 20:15
Netþjónabú - geitungabú
Hvað eiga netþjónar og geitungar sameiginlegt með loðdýrum? Að heimkynni þeirra nefnast bú. Af hverju er salur fullur af stórum tölvum bú en verksmiðja full af rafskautum til að "bræða" ál köllum ver? Bú er flott orð - minnir á landbúnað. Ver minnir á verstöð - líka jákvæðara en verksmiðja eða álbræðsla. -- Viðurkenni að mér gest skár að því að selja orku til að setja upp netþjóna en til að setja upp álver, líklega talsvert minna af orku. Í einni af fréttum dagsins kom þó fram að ekki yrðu til mörg störf. Enda Yahoo að sækjast eftir ódýru orkunni - og því að fólkið hér sé gott eins og kom fram í kvöldfréttum RÚV. Margt smátt gerir hins vegar eitt stórt og því full ástæða til að skoða málið vel.
![]() |
Yahoo kannar möguleika á netþjónabúi hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.5.2007 kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 20:56
Munurinn minnkar og minnkar ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2007 | 06:55
Herslumuninn vantar til að vinna :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 20:18
Traust efnahagsstjórn?!
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur mælst með ódýrustu auglýsingarnar í kosningabaráttunni, sækir nú í sig veðrið við að auglýsa og leggur áherslu á trausta efnahagsstjórn, t.d. í einni sem sýnir forsætisráðherra í helgarjakka og blárri peysu utan yfir fráhnepptri skyrtu. Fullyrt er að traust efnahagsstjórn sé stærsta velferðarmálið. En fyrir hvern? Í auglýsingunni - sjá t.d. Moggann 6. maí, bls. 41 - er beitt markvissum blekkingum með því að fullyrða að kaupmáttur hafi aukist um 75% frá árinu 1994 og atvinnuleysi sem áður var mikið vandamál er nú svo að segja óþekkt". Blekkingin felst í að velja upphafsár til samanburðar á hagstæðan hátt - Sjálfstæðisflokkurinn hefur nefnilega verið óslitið við völd frá 1991. Fyrstu árin eftir valdatöku hans voru heilmikil atvinnuleysisár, sennilega þau mestu frá því í heimskreppunni milli 1930 og 1940. Af hverju velur flokkurinn ekki upphafsárið 1991 til samanburðar? Er sá samanburður ekki nógu hagstæður?
Skuggahliðar velmegunar Sjálfstæðisflokksins eru því miður æði margar: Versnandi tannhirða barna ætti ekki að eiga sér stað í svo ríku landi. Fátækt fólks með börn veldur óþolandi aðstöðumun barna á grunnskólaaldri til tómstundaiðkunar. Aðbúnaður háskólanema hefur ekki batnað í takti við fjölgun þeirra enda eru framlög ríkis á nemanda með þeim lægstu sem þekkist í sambærilegum löndum - og nemendur þurfa að borga þó nokkurt skrásetningargjald. Við sem störfum í Háskólanum á Akureyri munum vel fjárskortinn hér fyrir einu til tveimur árum. Og Háskólinn er líka tilraunastofa einkavæðingar í húsnæðismálum. Lyfja- og lækniskostnaður stórhækkaði, sennilega mest á fyrstu stjórnarárunum. Rányrkja á náttúrunni er gífurleg en síðast en ekki síst hafa auðlindir verið afhentar kvótakóngum og álfurstum - það er ekki bara Framsóknarflokkurinn sem ber ábyrgð á eyðileggingu náttúrunnar, þótt ég ætli nú ekki bera sérstakt blak af honum.
Almenn stefna Sjálfstæðisflokksins felst í því að hygla þeim ríku á kostnað þeirra smáu. Honum hefur orðið ágengt í þessum efnum - það sýnir t.d. þróun skattleysismarka. Þetta þarf að stöðva í kosningunum á laugardaginn þannig að takist að mynda ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins. Atkvæði greitt vinstri grænum - XV - er atkvæði greitt aukinni velferð og meiri jöfnuði, gegn fátækt og með náttúruvernd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)