Færsluflokkur: Bloggar
17.10.2012 | 17:57
Samvinna opinberra háskóla á Íslandi - frétt af heimasíðu HÍ
Fastráðinn kennari við einn af opinberu háskólunum fjórum getur nú uppfyllt kennsluskyldu sína við aðra háskóla en þann sem hann er ráðinn til samkvæmt samkomulagi sem skólarnir undirrituðu á dögunum.
Tilgangur samningsins er að nýta betur mannauð opinberu háskólanna á sviði kennslu og að efla samstarf þeirra á milli. Þá er samningnum ætlað að fjölga og viðhalda störfum á sérhæfðum fræðasviðum. Þeir háskólar sem eru aðilar að samningnum eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum.
Samstarf opinberu háskólanna hófst að frumkvæði ráðherra mennta- og menningarmála sumarið 2010. Það miðar að eflingu íslenskra háskóla, aukinni hagkvæmni og því að halda uppi háskólastarfsemi úti um landið. Rektorar háskólanna fjögurra sitja ásamt fleirum í sjö manna verkefnisstjórn sem leiðir verkefnið.
Samstarfið hefur þegar borið ríkulegan ávöxt. Má nefna að gerður hefur verið samningur á milli skólanna um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum og þá hafa skólarnir fjórir tekið upp sama upplýsingakerfi, svokallaða Uglu, fyrir skráningu nemenda og samskipti nemenda og kennara.http://www.hi.is/frettir/haskolar_samnyta_krafta_kennara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2012 | 16:21
Raddir vorsins þagna - í 50 ár
Miðvikudaginn 17. október 2012 heldur Joni Seager, prófessor í hnattrænum fræðum við Bentley-háskóla, erindi sem ber heitið Fimmtíu ár frá útgáfu bókarinnar Raddir vorsins þagna eftir Rachel Carson. Skilaboð móttekin en án viðbragða? [The Fiftieth Anniversary of Rachel Carsons Silent Spring: Message heard, not really acted on]. Fyrirlesturinn fer fram í Öskju, stofu 132, kl. 12.25-13.15. Hann fer fram á ensku og er öllum opinn.
Andri Snær Magnason, rithöfundur, stýrir fundinum.
Raddir vorsins þagna er tímamótaverk sem hafði á margan hátt djúpstæð áhrif. Bókin hrinti af stað almennri vakningu í umhverfismálum og var aflvaki þeirrar umhverfishreyfingar sem við þekkjum í dag. Rachel hafði rétt fyrir sér á sínum tíma og hún hefur það enn. Við nánari skoðun á notkun skordýraeiturs í Bandaríkjunum í dag kemur í ljós að notkunin er óheft og í raun farin úr böndunum. Í fyrirlestri sínum mun Joni Seager fara yfir stöðuna og spyrja spurninga um brýn málefni umhverfisbaráttunnar í dag og hvernig beri að bregðast við. Hvað höfum við lært? Hvað hefur breyst?
Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Alþjóðlega jafnréttisskólann við Háskóla Íslands.
Öll velkomin!
On Wednesday 17 October 2012, Joni Seager, Professor of Global Studies at Bentley University, will give a public talk entitled The Fiftieth Anniversary of Rachel Carsons Silent Spring: Message heard, not really acted on. It will take place in the Askja Building, room 132, University of Iceland at 12.25-13.15. The lecture will be in English and is open to all free of charge.
The lecture is held in collaboration with the Gender Studies and Equality Training Programme at the University of Iceland.
Synopsis:
Silent Spring 50 Years Later:
Message heard, not really acted on
In many profound ways, Rachel Carsons central message in Silent Spring was heard and acted on. Silent Spring was enormously influential in policy circles and is credited with starting the modern environmental movement. She provoked environmental consciousness and environmental activism. Rachel was right, then, and she still is today.
But a closer look at pesticides in contemporary America reveals that we still use pesticides with wanton indifference to human and environmental health. A campaign in summer 2012 to spray much of Massachusetts to eradicate disease-carrying mosquitos provides a case study that shows how little information most citizens are given about pesticides, how much acquiescence there is when officials say spraying is necessary for public health, and how little those officials themselves know.
Rachel Carson worried about the over 200 chemicals that have been created for use in killing pests and the 500 new chemicals that annually find their way into actual use in the US alone. The U.S. Environmental Protection Agency has by now approved over 1400 pesticides for use, and maintains a list of about 87,000 chemicals in its Toxic Substances Inventory. Pesticide use is out of control were just more worried about it now.
https://rikk.hi.is/?p=1927#more-1927
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2012 | 20:22
Menntakvika, rannsóknir, nýbreytni og þróun
Árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands verður haldin í húsnæði Menntavísindasviðs v/Stakkahlíð þann 5. október 2012 undir heitinu Menntakvika: rannsóknir, nýbreytni og þróun. Megintilgangur ráðstefnunnar er að skapa mennta- og uppeldisstéttum vettvang til að kynnast nýbreytni í rannsókna og þróunarstarfi sem unnið er í skólum landsins og innan háskólaumhverfisins. Ráðstefnan er nú haldin í 15. sinn. http://vefsetur.hi.is/menntakvika/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2012 | 16:05
Er til ófullkominn trúnaðarbrestur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2012 | 19:09
Eru þeir að fela eitthvað eða gefa langt nef?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2012 | 07:49
Lærum hvert af öðru - virkjum grunnþættina
Málþing haldið í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 31. ágúst, frá kl. 13:30-16:30.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga málþing um grunnþætti í nýrri menntastefnu.
Grunnþættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011. Grunnþættir í menntun eru: Læsi í víðum skilningi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Þeir snúast um læsi á samfélag, menningu, umhverfi og náttúru, einnig um framtíðarsýn, getu og vilja til að hafa áhrif og taka virkan þátt í að viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa. Þeim er ætlað að undirstrika meginatriði í almennri menntun og stuðla að meiri samfellu í öllu skólastarfi.
Á málþinginu verður fjallað um innleiðingu grunnþáttanna í skólastarf og þar gefst tækifæri til að miðla hugmyndum og reynslu milli skóla og skólastiga. Má geta þess að á málþinginu verða túlkar sem munu sjá um táknmálstúlkun á inngangserindum.
Drög að dagskrá:
kl. 13:30- 13:50 Setning og innleiðing mennta- og menningarmálaráðherra
kl. 13:50- 15:00 Kveikjur fjögur inngangserindi um innleiðingu grunnþátta
Lærdómssamfélagið á Höfn Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri Hornafjarðar
Hvað hefur verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli með grunnþætti menntunar að gera ? Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólameistari í Flensborg
Sköpun og sjálfbærni í skólastarfi Jónína Lárusdóttir og Þóra Þorvaldsdóttir, skólastjórnendur í leikskólanum Klömbrum
Þáttur stjórnenda Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness
Inngangserindin verða send út vefsíðunni www.gaflari.is Táknmálstúlkunin verður einnig í útsendingu.
kl. 15:00 16:30 Kaffi og málstofur Málstofur: 1. Jafnrétti í skólastarfi 2. Lýðræði og mannréttindi í skólastarfi 3. Heilbrigði og velferð í skólastarfi 4. Sköpun í skólastarfi 5. Sjálfbærni í skólastarfi 6. Læsi í skólastarfi 7. Þáttur nemenda 8. Þáttur stjórnenda 9. Áhrif á námsmat 10. Grunnþættir á yngra stigi og í leikskólum 11. Grunnþættir á unglingastigi og í framhaldsskólum 12. Grunnþættir í leikskólastarfi 13. Grunnþættir í grunnskólastarfi 14. Grunnþættir í framhaldsskólastarfi.
Sjá líka http://namskra.is/malthing/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2012 | 20:55
Stjörnufyrirtækin (svo!) og háskólarnir
Í skýrslu frá árinu 2009, sem var gerð af nefnd skipaðri erlendum sérfræðingum, er þessi kafli:
Perception of government by some of Icelands star companies
Various studies point towards the excellent general framework conditions for innova-tion in Iceland. However, it seems that the perception in the "field" is different. As a result of our company visits, we conclude that there is a widespread perception that the government does little to facilitate industrial development and competitiveness. The innovative and competitive companies visited, pointed out that they expected, and still expect, the government to be more active in approaching these companies to see what support can be provided (direct or indirect) to better deal with the effects of the economic crisis. They have indicated to us that they perceive a lack of real interest from government authorities.
It is clearly important for a government to have a good relationship with the private sector, and particularly "star" companies, during difficult economic times. It is essential to maintain a strong private sector in Iceland and to ensure local employment. Companies expect good and stable framework conditions that involve good logistical/ICT infrastructure, availability of well-educated human resources, and a good and taxation friendly investment climate.
Iceland may wish to consider following the example of other small countries that ef-fectively have designated "account managers" in government for key established firms and gazelles who take responsibility for day to day contact with particular firms and act as the interface with government.
http://www.oecd.org/innovation/researchandknowledgemanagement/42846300.pdf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.8.2012 | 22:12
Skiptir stærðin máli II?
Tillögur um afdrif rannsóknarstofnana, birtar í skýrslunni Einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu, sl. vor:
" o Raunvísindastofnun, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Tilraunastöðin að Keldum sameinuðust Háskóla Íslands.
o Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn sameinaðist Háskóla Íslands.
o Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sameinaðist Háskólanum á Akureyri.
o Hafrannsóknastofnunin, Náttúrufræðistofnun Íslands, Veðurstofa Íslands og Veiðimálastofnun sem allar hafa skýrt hlutverk um vöktun og rannsóknir sameinuðust í eina rannsóknastofnun á sviði umhverfis og auðlindanýtingar. Þessi rannsóknastofnun sameinaði rannsóknir og vöktun á náttúru og eðliseiginleikum hvort heldur sem um er að ræða láð, lög eða loftslag. Þessi öfluga rannsóknastofnun gæti orðið mikilsvert framlag íslenskra vísindasamfélags til aukins skilnings á loftslagsbreytingum á norðurslóðum."
http://www.vt.is/visinda&taeknirad/einfoldun-visinda--og-nyskopunarkerfisins/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2012 | 16:36
Skiptir stærðin máli?
Bloggar | Breytt 3.8.2012 kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2012 | 14:59
Einum fundinum færra - hvaða fundi?
339 reyndust fundirnir vera síðan um fyrstu helgi í ágúst í fyrra, að vísu aðeins styttra ár þar sem helgin færðist fram um tvo daga, einum fundi færri en á sambærilegum tíma næsta háskólaár ár undan ... þetta er sagt í trausti þess að enginn fundur verði haldinn það sem eftir er dagsins eða á morgun. Mannfundir komandi helgar á sæludögum í Vatnaskógi verða ekki taldir með hvort sem er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)