Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
29.8.2009 | 18:08
Baráttan um orkulindirnar
Eins og ég hef áður bent á er einkavæðingarliðið ekki af baki dottið þrátt fyrir ófarirnar með bankakerfið og í kjölfar hennar ríkis- eða bankaeignarvæðingu bóksölunnar í landinu og fleiri þátta sem aldrei voru eða þurftu að vera í sameign (reyndar kom fram í fréttum um daginn að fyrri eigendur Tes og kaffis hafa nú keypt þann hluta fyrirtækisins til baka sem seldur hafði verið Pennanum).
Ásælnin í orkulindirnar og heilbrigðiskerfið, kannski menntakerfið, mun eflaust halda áfram. Það er verkefni vinstri grænna í pólitík að standa vörð um almannaþjónustuna - og það verður ekki auðvelt ef hún fer sömu leið og bankakerfið í leit einkaaðila að stórgróða eins og á græðgisárunum.
Raforkukerfið verði í almannaeign | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2009 | 17:51
Ánægjulegur fundur á Hvolsvelli :-)
Ályktunin sem hér er bloggað við var ein af mörgum sem var samþykkt á fundinum eða vísað til stjórnar flokksins til meiri úrvinnslu. Meðal annars voru samþykktar ályktanir um orkumál og friðlýsingu Þjórsárvera og Gjástykkis. Sérstaklega var fjallað um mikilvægi þess að fjármálastofnanir verði meðhöndlaðar sem grunnþjónusta sem þarf að vera í eigu almennings (eða að mínum dómi má það veru í eigu samvinnufélaga).
Grunnnetið á ný í eigu þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 10:19
Undirbúnings- og yfirferðartími kennara vanmetinn
Vinnudagar kennara að meðaltali 174,7 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 08:11
En tjón af því að aka alls konar slóðir merktar á ýmis kort?
Jeppamenn og kortagerðarmenn keppast nú við að bera hönd fyrir höfuð sér vegna skarprar gagnrýni Kolbrúnar Halldórsdóttur fv. alþingismanns og umhverfisráðherra sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag. Í dag ritar Kristinn Guðmundsson kortaútgefandi grein á bls. 24 þar sem ver rétt til að búa til "rétt kort" af slóðum sem hafi verið einhvers staðar í áratugi. En Kolbrún hafði gagnrýnt að í tölvuvædda kortagrunna væru settar GPS-mælingar af alls konar slóðum sem lægju um friðlönd. Kristinn telur það að birta ekki upplýsingar um slóð í Þjórsárverum væri "fölsun á staðreyndum".
Kristinn tekur fram að hlutverk fyrirtækis hans sé ekki að "ákveða hvar má aka og hvar ekki". Við erum sammála um það. En hann ætti kannski að hugsa sig tvívegis um hvort það sé hugsanlegt að "rétt kort" leiði til þess að einhverjir haldi í góðri trú að þau merki "hvar má aka". Ég gæti auðveldlega dottið í þá gryfju ef ég vissi ekki betur, meðal annars vegna þátttöku minnar í uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem við höfm áhyggjur af því að merkingar á kort hafi í raun leitt til óafturkræfra ákvarðana um "hvar má aka". Og fyrir utan náttúruspjöll sem geta stafað af akstri slóða sem rata á kort hjá kortagerðarmönnum sem búa til "rétt kort", þarf líka að huga að því hvort slóðin er þá merkt eðlilegum öryggismerkingum á kortinu - það er ekki á öllum kortum sem ég hef séð (en tek fram að ég hef ekki skoðað kort Kristins). Þannig getur "rétt kort" orðið býsna hættulegt nema fyrir þá sem eru á best útbúnu bifreiðunum.
Skoðum svo blogg Páls Ásgeirs: http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2009/08/25/jeppalaus-thjorsarver. Hann bendir á að það skiptir voðalegu litlu máli þótt einhver hafi einhvern tíma brotist eitthvert á jeppa; það þýði ekki að aðrir megi gerast sekir um þess háttar villimennsku. Og við þetta má enn bæta að þótt einhver hafi rænt verslun eigum við hin að halda áfram að stunda heiðarleg viðskipti.
Tjón vegna málningarsletta á bifreiðar fæst bætt | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2009 | 07:49
Haltu áfram, Gísli
Tillögur Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda, eru málefnalegar. Vonandi verður á þetta látið reyna - og ég skora á ríkisstjórnina að taka þetta mál upp. Á að bíða eftir því að fólk verði gjaldþrota eða fari í greiðsluaðlögun og þurfi tilsjónarmann? Aðgerðir sem afnema áhrif gengistryggingar lána, að hluta eða alveg, gætu einmitt komið í veg fyrir gjaldþrot. Einnig þarf að huga að áhrifum hækkunar vísitölu á almenn lán.
Það hefur oft verið nefnt að slíkar aðgerðir gætu verið kostnaðarsamar - en er ekki kostnaðarsamara og sársaukafullar að fólk verði gjaldþrota?
Voru gengisbundin lán bönnuð samkvæmt lögum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 07:44
Einkavæðingarliðið ekki af baki dottið!
Þrátt fyrir algerlega misheppnaða einka(vina)væðingu bankakerfisins heldur einkavæðingarliðið áfram að ásælast aðrar almannaeignir, í þessu tilviki hitaveitu og rafmagnsframleiðslu auk náttúruauðlindanna. Við höfum einnig orðið vör við einkavæðingartilburði í heilbrigðiskerfinu, svo sem ásóknina í sjúkrahúsið í Reykjanesbæ.
Vilja að stjórnvöld hindri kaup Magma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2009 | 16:56
Vetur eða vegagerð
Í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna er gjarna talað um að árstíðirnir séu aðeins tvær: Vetur og vegagerð (construction). Þetta getur alveg átt við hér um þjóðvegina. Hér er lítið hægt að gera við þá á veturna þegar umferðin er minnst heldur verður að vinna þá vinnu á sumrin.
Gleðilegt sprumar! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2009 | 08:54
Kæruleysisleg umræða um fjölda lögreglumanna
Stálu ginflöskum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2009 | 08:48
Enn Icesave
Ríkisábyrgðin falli niður 2024 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2009 | 15:36
Sýndarmennskan sýnist mér vera Framsóknarflokksins
Þýðingarlaus sýndarmennska | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)