Efni
3.2.2008 | 18:03
Dollywood
Var um daginn að hlusta á þátt um Dolly Parton og þá rifjaðist upp fyrir mér ferðalag frá Wisconsin til Atlanta í Georgíu þar sem við komum m.a. við í Dollywood, skemmtigarðinum sem hún lét gera í heimabæ sínum, Pigeon Forge. Reyndar held ég við höfum nú ekki gefið okkur tíma til að fara í skemmtigarðinn heldur fengið okkur eitthvað í gogginn eftir akstur gegnum Stóru-Reykjafjöll og þjóðgarðinn þar. En fyrir þá sem vilja kynna sér Dollywood fylgir tengill.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- Walls, seats and the gymnasium: a social-material ethnography...
- Slegið af menntunarkröfum til kennara
- Rannsóknir á framhaldsskólastarfi
- Nordic perspectives on disability studies in education
- Medical approach and ableism versus a human rights vision
- Sjálfbærnimenntun í aðalnámskrá 2011
- Sjúklingar eða notendur þjónustu
Eldri færslur
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Anna Karlsdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Benedikt Sigurðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergþóra Gísladóttir
- Bergþóra Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Barkarson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Edda Agnarsdóttir
- Einar Ólafsson
- Elva Guðmundsdóttir
- Eyþór Árnason
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Guðbjörg Pálsdóttir
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Hafsteinn Karlsson
- Halla Rut
- Heiða
- Heimssýn
- Helgi Már Barðason
- Hermann Óskarsson
- Héðinn Björnsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ísdrottningin
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Helgason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- J. Trausti Magnússon
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Margrét Sigurðardóttir
- María Kristjánsdóttir
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Nanna Rögnvaldardóttir
- (netauga)
- Ólafur Ingólfsson
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Paul Nikolov
- Pétur Björgvin
- Rósa Harðardóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Soffía Sigurðardóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- svarta
- Sæþór Helgi Jensson
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Viðar Eggertsson
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Þarfagreinir
- Þorbjörg Ásgeirsdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þór Saari
Athugasemdir
Mér finnst gaman að keyra um Bandaríkin. Alltaf eitthvað að sjá. Þess vegna finnst mér líka skemmtilegt að horfa á svona týpískar vegamyndir. Kannski af því maður kannast við þessa tilfinningu að keyra í bíl í marga daga í röð, sofa á mótelum, taka bensín á litlum krummaskuðum o.s.frv.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 3.2.2008 kl. 20:41
Mjög skemmtileg tilfinning, Kristín. Annars á að sýna Bagdad Café í Sjónvarpinu á eftir og ég hlakka til. Henni er lýst sem "þýsk-bandarískri bíómynd frá 1987"; ætli ég hafi ég séð hana í Majestic á King Street í Madison, sem nú er búið að loka.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 3.2.2008 kl. 20:51
Ég horfði á Bagdad café, eina af mínum uppáhalds myndum í minningunni - en varð fyrir vonbrigðum að hún var döbbuð á þýsku, við það missti hún svolítið af mómentum sem í henni voru. Ég væri til í að fara á þessar slóðir Bandaríkjanna.
Anna Karlsdóttir, 3.2.2008 kl. 23:53
Sæll....
Fyrir 3 árum síðan keyrði ég einmitt einnig um USA, virkilega gaman. Í þeirri ferð komum við ( hópurinn sem ég var með ) við í Dollywood.....tvímælalaust einn af hápuntkum ferðarinnar.
Matthias Freyr Matthiasson, 4.2.2008 kl. 08:56
Tek undir með ykkur af reynslu, að akstur um Bandaríkin er óviðjafnanlegt ævintýri. Ég keyrði með vinafólki frá Chicago suður með ánum til New Orleans, meðfram ströndinni til Florida, og svo norður með Austurströndinni til New York, og svo aftur til Illinois. Þetta var rúmlega þriggja vikna rúntur - alveg frábær.
En annað Ingólfur - hvar heyrðirðu þátt um Dolly?
Kv.
B
Bergþóra Jónsdóttir, 4.2.2008 kl. 11:38
Þetta mun hafa verið í Víðsjá (Rás 1) þann 28. janúar ef ég skil vef RÚV rétt - hann er enn á netinu. Dollý keypti garðinn, sem er talsvert eldri, árið 1986; ég var þarna á ferð 1989 þannig að þetta var nýskeð. Þetta er stórskemmtileg frásögn um Dollý og ímyndarsköpun hennar. Er ekki Lay Low núna búin að syngja lagið eftir hana í leikritinu Ökutímum og á plötu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 4.2.2008 kl. 12:27
Takk líka fyrir innlitið, Matthías og Anna.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 4.2.2008 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.