Færsluflokkur: Bloggar

Burðarás og fúnar Stoðir

Þau geta verið hjákátleg nöfnin á fyrirtækjunum sem fara á hvolf, en snautlegust er þó sennilega nafnbreyting "FL GROUP" í Stoðir, skömmu áður en fyrirtækið þurfti að óska greiðslustöðvunar sem mér skilst að það hafi öðru sinni farið fram á í dag.
mbl.is Háskólasjóður rýrnaði um 1,1 milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sletta skónum ...

Óhætt er að segja að hinn íraski blaðamaður sé orðin fræg persóna fyrir að hafa fundið upp nýja aðferð við mótmæli - eða a.m.k. innleitt hana í vestræna heim. Mig minnir reyndar ég heyrði um að þetta væri algeng tegund mótmæla á hans heimaslóð, en ég hafði bara ekki frétt það, enda aldrei tekið þátt í mótmælum á þeim slóðum. En gætum við ekki flutt út skyr til útlendra mótmælenda?


mbl.is Skóm rigndi yfir Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Framsókn - Nýi Glitnir - Nýja Kaupþing

Þess er krafist að skipt sé um fólk í bankakerfinu við nafnbreytingarnar yfir "nýi" að "nýja" fyrir framan, og nú ætar Nýi Glitnir að breyta sér á ný. Spurningin er því hvort Framsóknarflokkurinn muni skipta um nafni. Ef ég skil rétt hefur nýi formaðurinn gefið það í skyn að endurvekja þurfi gömul gildi flokksins. Ef það er samvinnustefnan er það gott mál. Ef það er virðing fyrir landinu en ekki ofurvirkjanastefnan er það gott mál.

Birgir Guðmundsson kollegi minn við Háskólann á Akureyri segir að grasrótin hafi látið til sín taka og talar um að það gæti gerst í öðrum flokkum. Það er gott - forysta flokkanna á að hlusta á flokksmenn en ekki koma á foringjaræði.


mbl.is Flokknum bjargað, segir Siv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Framsókn?

Nú hefur Framsókn haft fleiri formenn en auðvelt er að telja á fáum misserum, og skiptir gjarna út varaformanni og ritara líka. En verður Framsókn ný? Sitja ekki Valgerður Sverrisdóttir og Siv Friðleifsdóttir sem helstu foringjar þeirra á Alþingi? Sem með Halldóri og Davíð leiddu stefnuna í umhverfis- og virkjanamálum. Framsókn verður ekki hið einasta að gera upp við bankahrunið heldur og stefnu sína í umhverfismálum sem leiddi til Kárahnjúkavirkjunar og er grundvöllur ofurvirkjanastefnunnar í dag.


mbl.is Ábyrgð á efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Afsakiði meðan ég æli"

Í hvert skipti sem Kaupþing ber á góma dettur mér í hug lína úr Paradísarfuglinum, texta Megasar á plötunni stórkostlegu með Spilverki þjóðanna, Á bleikum náttkjólum. Reyndar var þetta áður en bankahrunið varð og ástæðan ekki sú að mér hefði verið svo sérstaklega meinlega við Kaupþing þá heldur auglýsingin með breskum leikara sem var að reyna að segja Kaupþing en hljóðin komu út úr honum eins og hann væri að fara að kasta upp. En núna þegar maður fréttir meira og meira af ósómanum verður manni hálfómótt og ónotalegt.
mbl.is Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alls engin þörf á sameiningu

Ég held sem notandi heilsugæslunnar á Akureyri að það sé ekki þörf á að sameina hana sjúkrahúsinu og bendi á viðvaranir læknaráðs Heilsugæslustöðvarinnar. Þar er meðal annars bent á að samstarf á jafnréttisgrundvelli sé að jafnaði farsælast. Þetta á við um samvinnu stofnana á Norðurlandi sem og annars staðar á landinu. Og ef það er rétt að sameina, með tilheyrandi kostnaði, er þá rétti tíminn akkúrat núna?
mbl.is Læknaráð HAK lýsir ánægju með núverandi rekstrarform
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagræðing í heilbrigðisþjónustu?

Ég er núna að hlusta á ráðgjafa heilbrigðisráðherra, eins og Guðjón Magnússon prófessor var kynntur. Eitt af því sem hann sagði var að of margar skurðstofur gætu skapað óöryggi, þar væru of fáar aðgerðir, eða eitthvað í þeim dúr, þess vegna mætti setja til dæmis allar meltingarsjúkdómaðgerðir á einn stað. En hvernig er það, eru ekki einkalæknastöðvarnar að koma upp eigin skurðstofum utan spítalanna? Einnig hélt Guðjón því fram að sameining heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi í eina stofnun færði ákvarðanatöku nær fólkinu! Ég skil ekki hvernig þess háttar er haldið fram - yfirstjórn stofnananna verður einmitt færð úr héraði.


mbl.is Engin áhrif haft á ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minni pappír til að aka á brott

Nú get ég ekki sagt að ég gleðjist því að dagblað þurfi að fækka útgáfudögum sínum - og stafar það af því að fækkun dagblaða er ekki æskileg lýðræðinu. Ekki að Fréttablaðið sé neitt sérstaklega gott blað eða ómissandi, þótt þar vinni margir góðir blaðamenn og aðstoðarritstjórinn, sem upplýsingar í fréttinni eru hafðar eftir, skrifi oft skelegga leiðara. En að mörgu væri eftirsjá ef blaðið legði upp laupana eins og 24 stundir í haust.

Hinu má gleðjast yfir ef fyrirtækið 365 miðlar hættir að bera, óumbeðið, mikið magn af pappír inn á heimili landsins svo sem eins og einn eða tvo daga í viku. Þannig má fækka í sama hlutfalli, vona ég, ökuferðum út að næsta dagblaðagámi.


mbl.is Til umræðu að fækka útgáfudögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítþvottur?

Ég vona samt að íslenska ríkisstjórnin taki alvarlega þá staðreynd að með aðgerðaleysi sínu gagnvart Ísrael ber alþjóðasamfélagið talsverða ábyrgð á því hvernig komið er. Það er rétt sem ég sé að sumir bloggarar segja að það að skvetta rauðum lit á stjórnarráðsbyggingar breytir litlu um morð Ísraela á óbreyttum borgurum og eyðileggingu þeirra á heilsugæslu og menntastofnunum. En við getum ekki hvítþvegið okkur af þessum glæpum þótt stjórnarráðshúsin sé hægt að hvítþvo.
mbl.is Hvítskúrað stjórnarráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sakleysið uppmálað

Stóru fyrirtækin sem heita skrítnum nöfnum eru sakleysið uppmálað. Í yfirlýsingu Exista segir meðal annars: "Varnir á eigið fé er eðlilegur og nauðsynlegur þáttur í ábyrgum rekstri fjármálafyrirtækis. Exista hefur gert samninga um gengisvarnir við alla stærstu viðskiptabankana ... Exista hefur átt í viðræðum við íslensku bankana meðal annars vegna uppgjörs varnasamninga og er enginn ágreiningur um réttmæti þessara samninga ..."

Ekki er nú þetta orðað þannig að ég skilji sakleysið fullkomlega, en ég á minna "eigið fé" að verja og hef ekki starfslið til að gera "varnasamninga" um "varnir á eigið fé" svo að það er kannski ekki von ég skilji þetta. Eða var nokkuð ætlast til þess í fréttatilkynningunni? 
En hvað er Exista? Skv. heimasíðu Exista á "Nýi Kaupþing banki hf" rúmlega 10% í fyrirtækinu en eitthvað sem heitir BBR ehf. á tæp 80%, líklega eru það Lýður og Ágúst Guðmundssynir kenndir við Bakkavör, því að þeir eru í stjórn Exista. En Ólafur Ólafsson á Kjalar hf. (94%) og kvartar núna hástöfum undan því að fá ekki allt að 100 milljarða í "gjaldeyrisskiptasamninga". Ætli það séu líka varnarsamningar?

mbl.is „Exista stundaði ekki spákaupmennsku"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband