18.4.2009 | 06:48
Hefði Margeir mátt nota vörumerki sparisjóðanna?
Eitt sem undrar mig er hvernig MP-banki hefði getað keypt SPRON: átti hann þá að fá að nota vörumerki sparisjóðanna? Ég er hræddur um að mér hefði fundist ég plataður ef svo hefði verið. Byr sem reyndar kallar sig sparisjóð þrátt fyrir breytingar er farinn að nota annað lógó en sparisjóðirnir, þótt hann skreyti sig með því heiti af því að hann vinnur með þeim í greiðslukerfum - eða er það ekki annars?
20. apríl: Mér hefur borist eftirfarandi ábending frá Byr í tölvupósti:
"Við viljum koma á framfæri upplýsingum til þín eftir ummæli þín á bloggi um Byr, að Byr er sparisjóður samkvæmt lögum og starfar í dag sem slíkur. Enda er firmanafnið Byr sparisjóður.
Byr sparisjóður er aðili að Sambandi Íslenskra Sparisjóða (SÍSP) en það eru heildarsamtök sparisjóðanna á Íslandi stofnuð árið 1967. Tilgangur SÍSP er að standa vörð um hagsmuni sparisjóða og styrkja starf þeirra þannig að þeir verði hæfari til að gegna því hlutverki sínu að efla sparnað og stuðla að heilbrigðu efnahagslífi þjóðarinnar. Náin samvinna er með sparisjóðum að uppbyggingu þjónustukerfa í gegnum Teris (áður Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna) sem er að stærstum hluta í eigu sparisjóða. Sparisjóðirnir á Íslandi eru 13 talsins og samanstanda af Byr sparisjóði og öllum öðrum sparisjóðum á landinu.
MP banki hættir við að kaupa útibú SPRON | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.