Engar launalækkanir opinberra starfsmanna á taxtalaunum

Ég heyrði í morgun að minn ágæti varaformaður, Katrín Jakobsdóttir, hefði rætt að lækka mætti laun opinberra starfsmanna. Væntanlega vill hún þá leggja það til í samningaviðræðum en ekki gera það með lögum eins og þeim sem voru sett á Kjararáð og ég hafði óttast að gamla ríkisstjórnin myndi fylgja eftir með launalækkunarlögum. Ég vil ekki trúa því að frambjóðendur vinstri grænna ætli sér slíkt verði flokkurinn áfram í ríkisstjórn - taka upp arfleifðina frá hinni svokölluðu þjóðarsátt um 1990 þegar brotnir voru kjarasamningar á háskólamenntuðum starfsmönnum. Ég held Katrín og aðrir frambjóðendur verði að skýra þetta miklu betur - eða draga til baka yfirlýsingar af þessum toga. Við þetta má bæta að ef einhvers staðar er greitt yfir töxtum er það allt annað mál, og það á að fara yfir launamálin af sjónarhóli jafnréttis.

Opinber störf eru flest í menntakerfinu og velkerfiskerfinu sem þarf að verja í yfirstandandi kreppu. Kerfin verða ekki varin í slag við okkur sem þar vinnum. En ég lýsi aftur yfir stuðningi við svokallaðan hátekjuskatt, sem reyndar leggst líka á millitekjur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Sæll Ingólfur !

Ég tók líka eftir þessum ummælum varaformanns VG í  gær.

Katrín Jakobsdóttir færði okkur sanninn um það að umræður um launalækkanir eru sennilega komnar mun lengra í ríkisstjórninni en við gerum okkur grein fyrir.  Margir samningar opinberra starfsmanna eru lausir eða við það að losna.  Opinberir starfsmenn láta það vitanlega ekki yfir sig ganga að semja um lægri taxta eftir allt kaupmáttarhrunið sem orðið hefur með verðbólgunni síðustu 18 mánuðina eða svo. 

Líklega mun stjórn VG og Samfylkingar þá ala á þeim ótta að ef menn taki ekki á sig launalækkun verði að segja upp starfsfólki. Mögulega tekst trikkið, fer eftir því hve forysta félaga innan BSRB (Ögmundur ?) BHM og KÍ er hnarreist og föst fyrir. Ef menn ganga ekki að tilboði um launalækkun verður næst hótað setningu nýrra “neyðarlaga” sem allir kauptaxtar starfsmanna ríkisins (og sveitarfélaga) verða lækkaðir með valdi og samningsréttur í raun afnuminn.

Einar Sveinbjörnsson 

Einar Sveinbjörnsson, 15.4.2009 kl. 08:42

2 identicon

Tek undir þetta ágætu menn. Mun birta fyrr en síðar bréf sem sannar tilvist þessara hugmynda. Ég trúi því ekki að stjórnarflokkarnir komi með þetta kortér fyrir kosningar.

Gísli Baldvinsson 15.4.2009 kl. 09:10

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Einar og Gísli, takk fyrir innlitið. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að núverandi stjórnarflokkar afnemi samningsréttinn

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 15.4.2009 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband