Geir vældi um vinnufrið

Og eiginlega fátt meira um það að segja. Og þó: Stjórnarandstaðan hefur alltaf fullan rétt til andmæla og það er hennar hlutverk að veita aðhald. Mig minnir þó að bæði í nærtíma og langtíma hafi Sjálfstæðisflokknum frekar leiðst kröftug stjórnarandstaða vinstri grænna og sérstaklega nú í haust kvartaði Geir undan því að ríkisstjórnin þyrfti vinnufrið. Mér líkar að núverandi forsætisráðherra ætli að gera opinber samskiptin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (sbr. fyrra blogg) - en þarf ekki fulltrúinn þar, sem nefndur er í greininni, að fara segja eitthvað af því sem hann þóttist vita?
mbl.is Segir Jóhanna ósatt um trúnaðinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það var mikið að Geir hrökk í gang, þó það væri bara ca. einu ári of seint.  Þetta er dapurleg frammistaða hjá honum blessuðum.  Verst að geta ekki lagt honum við stjóra í Seðlabankanum við hliðina á s.s.s.s Davíð.

(s.s.s.s =SjálfSkipuðum SeðlabankaStjóra)

Benedikt V. Warén, 16.2.2009 kl. 16:30

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Að maðurinn, nýbúinn að gera okkur Íslendinga að fíflum á alþjóðavettvangi, skuli leyfa sér að væna Jóhönnu um lygi er alveg yfirgengilega ósmekklegt !  Þessi sami maður sagði þjóðinni aldrei neitt annað en "að það væri verið að vinna í málunum" og að "það kæmi í ljós".  Hann kallaði fréttamann fífl og ég man ekki betur en að hann hafi verið staðinn að ósannsögli við fréttamenn.   

Málshátturinn að kasta steinum úr glerhúsi hlýtur að hafa verið saminn fyrir Geir.

Já, það fauk bara í mig þegar ég las þetta bull í honum.  Hvernig væri að leyfa þeim sem eru að reyna að bjarga því sem bjargað verður,  að hafa vinnufrið ?  Þið sjálfstæðismenn (lesist Davíð og Geir) eruð búnir að skemma nóg. 

Anna Einarsdóttir, 16.2.2009 kl. 17:21

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið og athugasemdirnar, Benedikt og Anna - verður fróðlegt að sjá tölvupóstsamskiptin :-)

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 16.2.2009 kl. 17:28

4 Smámynd: Hrannar Björn Arnarsson

Sæl

Greinilegt er að AGS er með kurteislegum hætti að benda Geir á að þeir geti ekki afhent honum eintak af endanlegri umsögn sinni, þar sem slíkar umsóknir fari beint til stjórnvalda. Athugasemd AGS virðist því eiga við lokaútgáfu hennar, ekki upprunalegu "tæknilegu ábendingarnnar" sem margítrekað var að yrðu að vera í trúnaði - sbr pósta AGS til forsætisráðuneytisins.

Geir hefur því aðeins hlaupið á sig þarna - hann hlýtur að biðjast afsökunar þegar það rennur upp fyrir honum.

Bestu kveðjur,

Hrannar Björn Arnarsson, 16.2.2009 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband