14.8.2009 | 13:48
Hlutverk lögreglunnar
Lögreglumenn í búsáhaldabyltingu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.8.2009 | 18:42
Hvenær verður hætt að skipa einkynja nefndir?
Álit brátt kynnt fulltrúum samninganefndanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2009 | 16:29
Hið ótrúlega að gerast?
Sátt að nást um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2009 | 16:22
Verður áfram leynimakk með orkuverðið?
Draumastarf fyrir minn bakgrunn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2009 | 11:28
Fórnað af því að of fáir þekkja til?
Vilja friðlýsa Gjástykki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.8.2009 | 19:26
Friðlýsum Gjástykki - röskum því ekki með borunum
Gjástykki er ásamt svæðinu í kringum Leirhnjúk vestan Kröflu sennilega það svæði í heiminum á þurru landi sem best sýnir hvernig landreksflekarnir færast í sundur. Landrekskenningin sannaðist þarna fyrir augum okkar á 8. og 9. áratug síðustu aldar og allt var vel skoðað og skráð. Á þessum slóðum eru aðstæður til fræðslu og náttúruupplifunar sem hvergi gefast annars staðar og í því felast mikil tækifæri, bæði andleg og efnaleg. Þegar málefni Gjástykkis eru skoðuð í víðu samhengi er ljóst að verðmæti svæðisins er afar mikið og í þeirri orku sem þar kann að vera tæknilega nýtanleg felst minnstur hluti þeirra verðmæta. Auðlegð svæðisins er fólgin í ímynd þess fyrir Ísland, fræðslugildi þess fyrir Ísland og umheiminn og því að þar eru óhemjumiklir möguleikar fyrir útivist og ferðaþjónustu, t.d. í gönguferðum milli Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði og Mývatns. Allt rask, þar með taldar rannsóknarboranir, ógnar þessu gildi og rýrir ímynd og gæði. Stjórnvöld, þar á meðal sveitarfélög í héraðinu, ættu því að berjast fyrir uppbyggingu eldfjallafræðagarðs í Gjástykki og við Leirhnjúk.
SUNN lýsa af ofangreindum ástæðum andstöðu við rannsóknarboranir í Gjástykki sem nú eru í matsferli vegna umhverfisáhrifa. Vissulega var það áfangi á sínum tíma að hafa fengið í gegn að ekki mætti bora í Gjástykki í rannsóknarskyni nema að undangengnu mati á umhverfisáhrifum. Þess háttar boranir kosta hins vegar sitt og það er auðvitað öllum ljóst að virkjunaraðili fer ekki út í þær nema að ætla sér að virkja. Við sem viljum vernda Gjástykki viljum ekkert rask þar og teljum að kostnaður við rannsóknarboranir sé óásættanlegur ef þar verður svo aldrei virkjað. Slíkur kostnaður er svo sem aldrei ásættanlegur - en núna er íslenska ríkið stórskuldugt og Landsvirkjun líka.
Af sömu ástæðum lýsa SUNN yfir andstöðu við hvers konar breytingar á skipulagi, svo sem aðalskipulagi sveitarfélaga eða skipulagi miðhálendisins, sem heimila orkuvinnslu í Gjástykki.
Friðlýsing Gjástykkis er forsenda þess að gæði svæðisins verði ekki skert. SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi nota tækifærið og beina því til ráðherra umhverfismála að hefjast þegar handa við undirbúning friðlýsingar svo tryggja megi eftir föngum að svæðið verði lyftistöng fyrir Ísland í samræmi við þáær einstöku aðstæður sem þar eru fyrir hendi.
Stjórn SUNN í ágúst 2009
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.7.2009 | 11:48
Varnarmálastofnun er óþörf
Ríkisendurskoðun fer yfir innkaup Varnarmálastofnunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2009 | 11:30
Banna fjölmiðlaumfjöllun?
Björgólfur Thor segir í yfirlýsingu sem er birt í Mogganum í gær: "Þá hef ég óskað eftir því við lögmann minn að hann kanni stöðu mína í því flóði skipulagðs óhróðurs, véfrétta og lyga sem vef- og fjölmiðlar á Íslandi hafa tekið að sér að dreifa um mig og fyrirtæki mín." Mér er spurn: Hver skipuleggur þenna meinta óhróður? Vill hann ekki að vefmiðlar og aðrir fjölmiðlar heimili fólki að segja skoðun sína á framferði þeirra auðmanna sem komu Íslandi á kaldan klaka? Björgólfur Thor verður vonandi dæmdur fyrir glæpi á eðlilegan hátt fyrir dómstólum, hafi hann framið þá, en hann sleppur ekki undan áliti almennings á framferði, lögmætu, ólögmætu, siðlegu, ósiðlegu, með því að óska eftir ritskoðun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 20:35
Stjórnarandstaðan og vinnufriðurinn
Ég man vel eftir því í október til janúar kvartaði fv. ríkisstjórn hástöfum undan því að hafa ekki vinnufrið til aðgerða. En nú ber svo við að Sjálfstæðisflokkurinn, forystuflokkur fv. ríkisstjórnar, dregur lappirnar.
Auðvitað á að íhuga Icesave-málið vel og ekki setja það á hraðferð í gegnum þingið. En meðan þjarkað er um það er hætt við að önnur mál tefjist sem þingið þarf að taka til meðferðar. Því er ég smeykur um að það sé réttast að fara að afgreiða Icesave.
Hlé gert á störfum þingsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.7.2009 | 20:29
Evrópusinnar = Evrópusambandssinnar??
Evrópusinnar ættu að hafa áhyggjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.7.2009 | 20:22
Bíðið við, ekkert gagn af formennsku Svía?
Umsókn metin á staðlaðan hátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.7.2009 | 17:55
Sannfæring vinstri grænna og Birgir Ármannsson
Það ótrúlega gerðist að mér blöskraði þegar ég heyrði Birgi Ármannsson gera grein fyrir atkvæði sínu í dag. Honum var greinilega mikið niðri fyrir um meintar væringar innan vinstri grænna, og forseti þings þurfti að slá allhressilega í bjölluna og minna hann á að hann var í ræðustól til að gera grein fyrir atkvæði sínu en ekki til að segja ljótt.
Ég held að andstæðingum flokks okkar verði samt ekki kápan úr því klæðinu í þeirri ósk sinni að flokkurinn klofni. Aðildarumsóknin er erfitt verkefni og nú er ekki um að annað að velja en að reyna að ná sem bestum samningi. Ég er hóflega bjartsýnn.
Fjölþætt sannfæring | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.7.2009 | 10:34
Friðum Gjástykki!
Umhverfisverndarsamtök vilja að Gjástykki verði verndað fyrir hvers konar raski vegna þess að þessi staður hefur mikið náttúruverndargildi þar sem hann er einn þeirra staða í heiminum þar sem best sést hvernig landrek birtist, sjá m.a. færslu um Gjástykki frá 2008 og færslu frá 2007. Ástæða er til að skora á umhverfisráðherra að huga að friðlýsingu Gjástykkis.
Vissulega er það áfangi að hafa fengið það í gegn að ekki megi bora í rannsóknarskyni þar nema að undangengnu mati á umhverfisáhrifum. Rannsóknarboranir kosta hins vegar sitt og það er auðvitað hverjum manni ljóst að virkjunaraðilar fara ekki út í þær nema þeir ætli sér að virkja. Við sem viljum vernda Gjástykki viljum ekkert rask þar og teljum að kostnaður við rannsóknarboranir sé óásættanlegur ef þar verður svo aldrei virkjað. Slíkur kostnaður er svo sem aldrei ásættanlegur - en núna er íslenska ríkið stórskuldugt og Landsvirkjun líka. Rannsóknarborunum sem leiða til þeirra niðurstöðu að þar sé vinnanleg orka og síðan er ekki virkjað má auðvitað líkja við bjölluat, hina frægu líkingu Jóns Bjarnasonar landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, um umsókn um aðild að Evrópusambandinu sé eins og hvert annað bjölluat af hálfu þeirra sem eru fyrir fram á móti aðildinni.
Leita umsagna um rannsóknarboranir í Gjástykki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 09:31
Menntun drengja - samanburður á Ástralíu og Íslandi
Nýverið birtist í tímaritinu Scandinavian Journal of Educational Research greinin Possibilities in the Boy Turn? Comparative Lessons from Australia and Iceland eftir Ingólf Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri, og Bob Lingard og Martin Mills, prófessora við Queensland-háskóla.
Í greininni er rætt hvernig hin alþjóðlega orðræða um að drengir dragist aftur úr breiðist út um hinn iðnvædda heim og hvernig þessi orðræða hefur tilhneigingu til að vera hluti af andfemínískri hreyfingu. Þótt grunnurinn sé sambærilegur hefur þessi orðræða birst með nokkuð ólíkum hætti í löndunum tveimur. Í Ástralíu hafði verið rekin nokkuð sterk femínísk menntaumbótastefna sem andstæðingunum þótti hafa haft slæm áhrif á stöðu drengja og í kjölfarið voru gerðar skýrslur um meinta slæma stöðu drengja og mikil umfjöllun var í fjölmiðlum. Á Íslandi voru andstæðurnar minni en þó hafa verið haldnar ráðstefnur um menntun drengja þar sem áhyggjur hafa verið látnar í ljós yfir stöðu þeirra, ekki síst eftir að ljós kom í PISA-rannsókninni 2003 að Íslands var eina landið í heiminum þar sem stúlkur stóðu sig betur en drengir á öllum sviðum stærðfræðinnar. Höfundar greinarinnar fagna umræðum um stöðu drengja en gagnrýna réttmæti þess að stilla árangri drengja og stúlkna upp sem andstæðum. Þeir leggja áherslu á nýja femíníska menntastefnu sem þeir telja nauðsynlegt svar við drengjaorðræðunni. Í henni felst gagnrýnin afstaða til hefðbundinnar karlmennsku og kröfur um að skólar verði virkir þátttakendur í skapa kynjaréttlátt samfélag. Scandinavian Journal of Educational Research, 53. árgangur, 4. hefti, bls. 309-325 DOI: 10.1080/00313830903043083
Útdráttur (abstract) á ensku: Recognising that there is now a globalised educational discourse about "failing boys" circulating in the privileged nations of the global north, this article provides a comparative perspective on educational policy responses to the "boy turn" in Australia and Iceland. Specificities of the responses to the boy turn in the two societies offer interesting insights into this policy domain. For instance, Australian policy has been state-centric with the media playing a significant role in backlash politics and with federal government funding interventions for boys, and Iceland was the only nation in which girls outperformed boys in all areas of mathematics in the PISA 2003 study. The article concludes by arguing the need for a renewed feminist and profeminist agenda to challenge dominant constructions of masculinity and for the establishment of a more equal gender order.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 09:27
Pepsí eða kók?
Myndband af hárbruna Jackson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)