Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
30.10.2008 | 14:49
Steep & Brew
Sit á einu af uppáhaldskaffihúsunum mínum, Steep & Brew á State Street í Madison, Wisconsin, á leið yfir í kennaradeildina, um tíu mín. gang héðan þar sem ég mun sitja við vinnu í dag í rannsóknarmisseri mínu. Ég hef nú verið í Bandaríkjunum í rúmar tvær vikur og fylgst með kosningabaráttunni. Út um alla borg eru Obama-Biden skilti fyrir framan húsin og í gluggum þeirra. Og í mörgum verslunum er lýst yfir stuðningi við þá félaga. Hið sama gilti um úthverfi Cleveland, Shaker Heights og Cleveland Heights, þar sem ég dvaldi í síðustu viku, en þó ekki jafnsamfelldur stuðningur og hér og fleiri McCain-Palin skilti þegar lengra dró frá miðborginni.
McCain sakar Obama um vanhæfni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.10.2008 | 03:21
Fagstofnanir eða pólitíkusar?
Nú er auðvitað bankakreppa hápólitískt mál, afleiðing af auðvaldskerfi, of óskýrum eða lítilfjörlegum reglum og óheftum vaxtarhugsunarhætti - og pólitíkusar þurfa að fást við vandann og taka pólitískar ákvarðanir þegar við á. En um margt af þessu hlýtur að þurfa fagfólk í bankastarfsemi.
Og ég tók eftir því, íslenska fjármálaráðherranum til hróss, að hann beinlínis reyndi að snúa hinn breska af sér og það ættu að vera Fjármálaeftirlit landanna tveggja sem myndu reyna að leysa það mál sem ráðherrarnir tveir ræddu um í símtalinu fræga. Ég get ómögulega skilið hvers vegna viðtalið var ekki birt strax: Var það trúnaður við breska fjármálaráðherrann sem sneri því Árni sagði á haus? Ég get þá a.m.k. ekki séð annað en Darling hafi rofið slíkan trúnað. Það skaðaði traust til stjórnvalda að leyna viðtalinu, fékk mann til að trúa að Árni hefði sagt einhverja vitleysu, þegar hann í raun og veru reyndi að fá Darling til að fara faglegar leiðir. Vonandi hefur Darling ekki með yfirlýsingum sínum skaðað hagsmuni þeirra sem hann þóttist ætla að verja!
Var ekki í nokkrum vafa eftir samtalið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 00:43
Framsóknarföt?
Sarah Palin kastar fínu fötunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2008 | 15:47
Capitalism and deregulation (auðvald, afnám regluveldis)
Norðurlöndin sameinist í aðstoð við Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.10.2008 | 20:40
Skýr skilaboð
Hætta að flækjast fyrir, segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokkins. Jamm, það kemur alls ekki á óvart að íhaldið biður um að lögum verði breytt eða frá þeim vikið og umhverfisáhrif ekki metin. Á náttúra Íslands líkt og efnahagur þjóðarinnar að gjalda fyrir ófarirnar í bankamálunum? Ég segi nei við því. Gott að heyra að ekki er bilbugur á umhverfisráðherra sem svaraði Jóni alveg skýrt og nefndi reyndar í leiðinni að Alcoa virtist ekkert vera að flýta sér.
Allt í fína á Bakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2008 | 20:27
Reiðubréf eða óreiðubréf
Fyrir um það bil 15 árum kom fram á aðalfundi Hagþenkis, félags höfbunda fræðirita og kennslugagna, að gjaldkerfi geymdi fjármuni félagsins í reiðubréfum hjá einhverjum bankanum, líklega Íslandsbanka sem síðar skipti um nafn og heitir nú Glitnir. Hrósuðu fundarmenn gjaldkeranum mjög fyrir að hafa ekki sett féð í óreiðubréf og þótti fyndið. En það er bara ekkert fyndið það sem hefur gerst nú að fólk hefur misst fjármuni sína vegna kaupa á alls konar bréfum sem ekki eru innistæðutryggð með sama hætti og innlánsreikningar. Vitanlega er þó ekki rétt að tala um ótrygg bréf sem óreiðubréf heldur hafa þau að mér skilst reynst glæfrabréf, ekki pappírsins virði eins og sagt er, enda líklega oft á tíðum engin bréf, heldur rafrænar færslur.
(Gjaldkeri á þetta víst að vera, ekki gjaldkerfi!)
Gengi bréfa bankanna 0 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.10.2008 kl. 03:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2008 | 09:07
Að vera vitur eftir á - eða fyrir fram
Nú um stundir er rétt og mikilvægast að endurskoða hina pólitísku stefnu áður en fleiri félagsleg kerfi eru einkavædd. Síðustu daga hefur nefnilega komið í ljós að í raun er banka- og fjármálakerfið líka félagslegt kerfi sem þarf að vera gangandi til að fólk og fyrirtæki geti gengið að sínum daglegu störfum.
Við vinstri græn vildum ekki einkavæða bankana og alls ekki með þeim hætti sem það var gert. Við vinstri græn erum því ekki vitur eftir á heldur vitur fyrir fram. Reyndar tala ég ekki hér sem talsmaður flokksins þannig ég man ekki nákvæmlega hvað vinstri grænu forystumennirnir sögðu; þannig man ég ekki fyrir víst hvort alþingismenn flokksins lögðu áherslu á til þrautavara að einkavæða bara annan ríkisbankann í einu, þ.e. Búnaðarbankann eða Landsbankann. En ég man að sumt af því sem vinstri græn sögðu var afgreitt sem afturhalds- og svartsýnisraus. Enda held ég fáa hafi órað fyrir þeim hamförum sem átt hafa sér stað síðustu daga nema kannski þá sem best héldu við marxismanum sínum.Brown hótar aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.10.2008 | 10:11
Vinnufundur um verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
Undanfarin misseri hef ég tek þátt í því áhugaverða starfi sem er uppbygging Vatnajökulsþjóðgarðs, sl. ár í svæðisráði norðursvæðis og þar á undan í nefnd sem undirbjó lög um þjóðgarðinn. Á morgun verður vinnufundur stjórnar og svæðisráða, haldinn í Mývatnssveit, þar sem undirbúnar verða verndaráætlanir um þjóðgarðinn. Verndaráætlun heitir á ensku management plan og er í rauninni framkvæmda- og skipulagsáætlun. Þar verður tekið fram hvaða verndarstig er á hverjum hluta þjóðgarðsins.
Ég vona að það takist á vinnufundinum að móta heildstæðar hugmyndir um uppbyggingu gönguleiða í þjóðgarðinum. Ég á mér þann draum að það verði kerfi leiða þannig að hægt sé að ganga báðum megin Jökulsár á Fjöllum og að það verði hringleið um jökulinn og svo verði gönguleiðir til sjávar fyrir sunnan jökul og í Lóni og ef til vill víðar fyrir suðaustan jökulinn. En út frá þessum leiðum þurfa líka að vera gönguleiðir niður í byggð, t.d. frá Dettifossi til Mývatnssveitar og frá Herðubreiðarlindum og Öskju niður í Bárðardal og niður í Mývatnssveit. Margar af þessum leiðum eru til staðar, en það þarf að setja þær fram sem heildstætt kerfi sem getur orðið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, erlenda sem innlenda, og finna nýjar leiðir og enn fjölbreyttari.
Ég býst einnig við því að rætt verði um hvers konar vegir og bílslóðir skuli vera í þjóðgarðinum því að áætlun um þá þarf auðvitað að vera í slíku plaggi sem verndaráætlunin verður. Miklu skiptir að vegir falli sem best að landinu en það á því miður ekki við um þann veg sem nefndur er Dettifossvegur og á að liggja að hluta til um Vatnajökulsþjóðgarð, bæði þann hluta sem áður tilheyrði þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum, svo og frá Dettifossi upp á þjóðveg um land sem þyrfti að tilheyra þjóðgarðinum þegar fram líða stundir. (Sjá fyrri blogg - og annað blogg.)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)