Fyrsti flokkurinn með fleiri konur sem ráðherra

Eftir að Álfheiður Ingadóttir tók sæti í ríkisstjórninni eru nú þrjár konur og tveir karlar í hópi ráðherra vinstri grænna – og er þá líka jafn fjöldi karla og kvenna í ríkisstjórninni eins og var í minnihlutastjórninni sl. vetur. Ef minni mitt hrekkur til hefur aldrei gerst fyrr að fleiri konur en karlar úr sama flokknum séu ráðherrar á sama tíma – en hugsanlega var um tíma jafn fjöldi karla og kvenna úr Framsóknarflokknum um eða upp úr aldamótunum. Þeim tímamótum að flokkur tefli nú fram fleiri konum en körlum í ríkisstjórn ber að fagna þótt á því hvíli sá skuggi að Ögmundur Jónasson er ekki lengur ráðherra.


mbl.is Nýr ráðherra tók við lyklavöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Já Ingólfur minn, og heldurðu að ríkisstjórnin verði nú betri fyrir vikið?

Gústaf Níelsson, 1.10.2009 kl. 21:14

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Gustaf minn, vid sagnfraedingarnir leggjum audvitad enga gildisdoma a tad fyrr en eftir morg ar  - en holdum bara til haga hinni sogulega stadreynd. Jafnframt tok eg saman i morgun ad Vinstri graen hafa haft sjo radherra samtals i rikisstjornartid sinni, tar af fjorar konur og trja karla. Vinstri graen er lika staersti flokkurinn sem hefur jafna tolu tingmanna eftir kynjum i sogulegu ljosi, tvi ad af 16 tingmonnum flokksins (14 nu, 2 fyrrv.) eru karlar og konur jofn tala.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.10.2009 kl. 09:11

3 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Nýjasta konan kom í stólinn af því henni finst í lagi að skrifa upp á hvaða aukaskuldbindingar sem úr Icesave dýrindinu !

Það var víst rómverskur keisari sem setti hund í fast sæti ráðherra hjá sér.

Það er þá merki um að Ítalir hafi verið miklir dýravinir!

There are lies, more lies and statistics... Eða hvað?

Jón Ásgeir Bjarnason, 2.10.2009 kl. 09:46

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ágæti Jón nafni Bjarnason - fyrir það fyrsta hefur þú fullkomlega rangt fyrir þér að Álfheiði Ingadóttur finnist í lagi að skrifa upp á "hvaða aukaskuldbindingar sem [er] úr Icesave ..." En í takti við líkingu þína um hund, væri þá ekki réttast ég sveiaði þér fyrir málflutninginn og líkinguna?

Aukaskuldbindingar??? Málið snýst reyndar um fyrirvara eða ekki fyrirvara eða fáa fyrirvara, hélt ég.

Ég er ekki hrifinn af fyrirvaralaus Icesave, en við eigum fáa aðra kosti í þeirri stöðu sem við erum. Það hefur mikill tími farið í Icesave - einhverju af honum hefði verið betur varið öðruvísi. En um það þýðir lítið að fást.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.10.2009 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband