Norræn ráðstefna um jafnréttisfræðslu

Ég á að tala á norrænni ráðstefnu um jafnréttisfræðslu í skólum 21.-22. september. Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári og er jafnréttisfræðsla í skólum eitt af forgangsverkefnum nefndarinnar. Á ráðstefnunni verða fyrirmyndarverkefni á sviði jafnréttisstarfs í skólum verða kynnt. Ráðstefnan, sem er samstarfsverkefni félags- og tryggingamálaráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins, verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík. Umsjón með undirbúningi og framkvæmd hefur Jafnréttisstofa. Ráðstefnan fer að mestu fram á skandinavískum málum og verður túlkuð. Ráðstefnan, sem er öllum opin, er kjörinn vettvangur fyrir skólafólk, foreldra, fræðimenn, stjórnmálamenn og alla þá sem vilja fræða og fræðast um jafnrétti í námi og starfi. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að kynna efni sem veitt getur innblástur til góðra verka í jafnréttismálum í bland við fræðileg erindi.

Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband