Efni
21.4.2009 | 07:25
Vændi er ekki atvinnugrein heldur kúgun
Morgunblaðið fagnar í leiðara sínum nýju vændislögum sem þingmenn SjálfstæðisFLokksins voru annaðhvort á móti eða sátu hjá. Sú bábilja gengur þegar fólk ætlar að vera fyndið að kalla vændi "elstu atvinnugrein kvenna" - og það gerði t.d. efsti maður (kona) SjálfstæðisFLokksins í Suðurkjördæmi í Sjónvarpinu í gærkvöld. Slíkt er sögufölsun, annars vegar vegna þess að konur stunduðu akuryrkju og mörg önnur störf áður en nokkrum datt í hug að selja aðgang að líkama þeirra, en hins vegar vegna þess að vændi er yfirleitt ekki atvinnugrein kvenna: flestir melludólgar, það er þeir sem hafa milligöngu um að selja aðgang að líkama kvenna (og stundum drengja) eru karlar.
Hugmyndin um að vændi sé atvinnugrein er varhugaverð því að þá er rætt um það á röngum forsendum. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir í inngangsorðum að það sé ógeðfelld atvinnugrein og í lokaorðum sínum að það sé ekki venjuleg atvinnugrein. Þessu er ég sammála - nema ég vil reyndar að við losum okkur alveg við þá hugmynd að vændi sé atvinnugrein. Vændi er kúgun og ofbeldi gagnvart konum - ekki atvinna - og þá skiptir engu máli hvort einhver kona fær einhvern tíma peninga fyrir kynlíf (frjálst eða þvingað). Ég vil hrósa leiðarahöfundinum fyrir að taka þátt í að kveða niður bábiljuna um frjálsar og hamingjusamar vændiskonur.
Fagna vændislögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 161084
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- Walls, seats and the gymnasium: a social-material ethnography...
- Slegið af menntunarkröfum til kennara
- Rannsóknir á framhaldsskólastarfi
- Nordic perspectives on disability studies in education
- Medical approach and ableism versus a human rights vision
- Sjálfbærnimenntun í aðalnámskrá 2011
- Sjúklingar eða notendur þjónustu
Eldri færslur
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Anna Karlsdóttir
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Þóra Jónsdóttir
- Árni Gunnarsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Benedikt Sigurðarson
- Berglind Steinsdóttir
- Bergþóra Gísladóttir
- Bergþóra Jónsdóttir
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Björn Barkarson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Edda Agnarsdóttir
- Einar Ólafsson
- Elva Guðmundsdóttir
- Eyþór Árnason
- Friðrik Dagur Arnarson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Guðbjörg Pálsdóttir
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Hafsteinn Karlsson
- Halla Rut
- Heiða
- Heimssýn
- Helgi Már Barðason
- Hermann Óskarsson
- Héðinn Björnsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ísdrottningin
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Helgason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- J. Trausti Magnússon
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Kristín Dýrfjörð
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Margrét Sigurðardóttir
- María Kristjánsdóttir
- Morten Lange
- Myndlistarfélagið
- Nanna Rögnvaldardóttir
- (netauga)
- Ólafur Ingólfsson
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Paul Nikolov
- Pétur Björgvin
- Rósa Harðardóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Soffía Sigurðardóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steinarr Bjarni Guðmundsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- svarta
- Sæþór Helgi Jensson
- Torfusamtökin
- Toshiki Toma
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Viðar Eggertsson
- Vilhjálmur Árnason
- Villi Asgeirsson
- Þarfagreinir
- Þorbjörg Ásgeirsdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þór Saari
Athugasemdir
Agerlega sammála.
sandkassi 21.4.2009 kl. 10:22
Ég held þú verðir að skilgreina "Atvinnugrein" ef þú ætlar að dansa svona í kringum merkingu orðana.
Fransman 21.4.2009 kl. 10:48
Takk fyrir innlitið, Gunnar og Fransman.
Fransman: Er eitthvað í skilgreiningum sem þú styðst við sem gerir vændi að "atvinnugrein"? Orðabókin segir "störf og atvinnurekstur á ákveðnu sviði", en orðabækur taka svo sem aldrei af neinn vafa. Og ekki er vændi skilgreint sem atvinnugrein hjá Hagstofunni. Ég endurtek að vændi er kúgun á fólki, aðallega kúgun á konum.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.4.2009 kl. 11:32
Mikið er ánægjulegt að sjá að allir karlmenn eru ekki kynferðislega misþroska.
Kristján Sigurður Kristjánsson, 21.4.2009 kl. 15:48
Þetta er stórgott innlegg hjá þér. Mér finnst vanta meiri umræðu um þetta. Manni dettur í hug að þessi leiðindasetning um "elstu atvinnugrein kvenna" geti á óbeinan hátt komið því í hausinn á fólki að það sé eitthvað í lagi við kaup og sölu á vændi. Svo eru þeir til sem finnst eitthvað betra að kaupa vændi en selja. Ég segi við þá að það sama gildir um að stela og kaupa þýfi, það tilheyrir sama ógeðssúpupottinum. Með því að kaupa þýfi er ýtt undir stuldinn. Með því að kaupa vændi er ýtt undir vændi.
Kristinn Ingi Pétursson 21.4.2009 kl. 16:49
Þakka ykkur innleggin, Kristján Sigurður og Kristinn Ingi -
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.4.2009 kl. 17:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.