Grænfánaskólum á Norðurlandi fjölgar

Í gær vorum við Eygló Björnsdóttir hérna hinum megin við fjörðinn á vegum Landverndar til að afhenda tveimur skólum, Álfaborg og Valsárskóla, svokallaðan grænfána. Hann er veittur fyrir árangur í umhverfismálum. Skólarnir vinna að því um tveggja ára skeið að fá grænfána. Skipuð er umhverfisnefnd í skólanum og lögð mikil áhersla á þátttöku nemenda. Það kom greinilega fram í gær í Valsárskóla þegar nemendur kynntu verkefnið.

Athöfnin í gær var þannig að fyrst fékk Álfaborg grænfánann sinn með viðeigandi útskýringum og ræðuhöldum (mjög stuttum). Skjal er á ensku til að leggja áherslu á að með móttöku grænfána komst skólinn í hóp þúsunda skóla í fjölda landa. Nemendur í umhverfisnefnd tóku við fánanum. Og auðvitað var fáninn dreginn að húni. Viðstaddir voru kennarar, nemendur og starfsfólk Álfaborgar og Valsárskóla, auk fjölmargra íbúa Svalbarðsstrandar. Síðan var gengið yfir að Valsárskóla, sem er á sömu lóð, flutt stytt útgáfa af ræðunum, nemendur í umhverfisnefnd fengu fánann afhentan, og hann dreginn upp nýja fánastöng. Að lokum var kynning nemenda og veisla þar sem á boðstólum voru pylsur og kökur.

Á annað hundrað skólar á landinu hafa nú fengið grænfána eða vinna að því að fá hann, sbr. heimasíðu Landverndar. Átta skólar á Norðurlandi fá grænfána í fyrsta eða annað skipti nú í vor.

Það er afar ánægjuleg reynsla að fá að afhenda grænfána, eins og ég hef tekið að mér í fáein skipti, og taka með því þátt í hátíðarstund í skólanum sem fær grænfánann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband