Efni
18.12.2007 | 16:39
Sennilega er hægt að útrýma kynbundnum launamun
Launamunur kynjanna mælist nú aðeins þrjú prósent hjá Akureyrarbæ, ef marka má niðurstöður nýrrar launakönnunar ... Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar, hélt erindi um breytingar á launakerfi bæjarins. Akureyrarbær hefur unnið markvisst að því undanfarin ár að jafna laun kynjanna, meðal annars með því að taka þátt í starfsmati, setja reglur um þak á yfirvinnu og hætta að greiða fastar greiðslur fyrir akstur og óunna yfirvinnu.
Skáletraði textinn er tekinn af heimasíðu Jafnréttisstofu þar sem er frétt um málþingið Kynbundinn launamunur aðferðir til úrbóta,sem Jafnréttisstofa hélt á Hótel KEA í gær. Yfir 70 manns mættu á fundinn sem var stuttur og hnitmiðaður, troðfullur af upplýsingum. Því miður voru þær ekki alveg allar svona jákvæðar, t.d. kom fram að ef þróun kynbundins launamunar í landinu öllu verður sú sama og það sem af er þessari öld verði það ekki fyrr en upp úr miðri öld sem hann jafnast.
Gleðilegri voru því tíðindin frá Akureyrarbæ þar sem konur hafa nú reyndar örlítið hærri dagvinnulaun en karlar sé tekið mið af ólíkum störfum og starfsaldri og fleiri þáttum sem talið er að megi skýra með öðru en kyni. En það sem gerðist hér á Akureyri "gerðist" ekki heldur var unnið af vandvirkni og fagmennsku og kostaði svita og tár, eins og Katrín sagði, þó ekki blóð, eins og hún tók líka fram. Þetta starf sannar að það er líklega hægt að minnka og jafnvel eyða kynbundnum launamun.
Einnig var sagt frá jafnréttisstarfi Skýrr og ég verð að segja að ég er enn þá ánægðari með að vista vefsíðuna mína hjá ismennt.is, sem ég borga þeim fyrir, eftir að frétti af jákvæðu jafnréttisstarfi þar og því að starfsfólkið þar fær "alvöru latté" í vinnunni úr góðum baunum frá Tei og kaffi.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 183
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 167
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- Nýliðar í grunnskólakennslu og kynjasjónarhorn
- Walls, seats and the gymnasium: a social-material ethnography...
- Slegið af menntunarkröfum til kennara
- Rannsóknir á framhaldsskólastarfi
- Nordic perspectives on disability studies in education
- Medical approach and ableism versus a human rights vision
- Sjálfbærnimenntun í aðalnámskrá 2011
Eldri færslur
2025
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
-
Alfreð Símonarson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Anna Karlsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Anna Þóra Jónsdóttir
-
Árni Gunnarsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Benedikt Sigurðarson
-
Berglind Steinsdóttir
-
Bergþóra Gísladóttir
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Björn Barkarson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Dagbjört Ásgeirsdóttir
-
Dofri Hermannsson
-
Edda Agnarsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Elva Guðmundsdóttir
-
Eyþór Árnason
-
Friðrik Dagur Arnarson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Guðbjörg Pálsdóttir
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðmundur Rafnkell Gíslason
-
Guðrún Katrín Árnadóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Hafsteinn Karlsson
-
Halla Rut
-
Heiða
-
Heimssýn
-
Helgi Már Barðason
-
Hermann Óskarsson
-
Héðinn Björnsson
-
Hilda Jana Gísladóttir
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ísdrottningin
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Jónas Helgason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Bjarnason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
J. Trausti Magnússon
-
Karl Tómasson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Ástgeirsdóttir
-
Kristín Dýrfjörð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Leikhópurinn Lotta
-
Margrét Sigurðardóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Morten Lange
-
Myndlistarfélagið
-
Nanna Rögnvaldardóttir
-
(netauga)
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólöf Ýrr Atladóttir
-
Paul Nikolov
-
Pétur Björgvin
-
Rósa Harðardóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sindri Kristjánsson
-
Soffía Sigurðardóttir
-
Sóley Tómasdóttir
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Örn Viðarsson
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
svarta
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Torfusamtökin
-
Toshiki Toma
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valgerður Halldórsdóttir
-
Vefritid
-
Viðar Eggertsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
Villi Asgeirsson
-
Þarfagreinir
-
Þorbjörg Ásgeirsdóttir
-
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
-
Þór Saari
Myndaalbúm
Nýjustu athugasemdir
- Nýliðar í grunnskólakennslu og kynjasjónarhorn: Þetta er mjög slök athugasemd hjá þér, Hilmar. Það er ekki stak... ingolfurasgeirjohannesson 20.6.2025
- Nýliðar í grunnskólakennslu og kynjasjónarhorn: Með fullri virðingu. Það færi betur ef þeir sem tjá sig um ísle... Hilmar Hafsteinsson 19.6.2025
Af mbl.is
Innlent
- Ferðamenn verið þægir í einhvern tíma
- Meirihlutinn klofnaði í afstöðu til Björns
- Ísland hafi burði til að stofna her
- Sundhnúkar kannski að verða bensínlausir
- Maðurinn hafi verið með alvarlega nýrnabilun
- Höfðu einstakling í vinnu án atvinnuleyfis
- Fleiri hús frá víkingaöld á Íslandi
- Lýsa áhyggjum af bákni í kringum kílómetragjald
Athugasemdir
Það eru tvær leiðir til að útrýma kynbundnum launamun. Önnur er sú að fólk vinni aðeins hjá opinberum eða hálfopinberum aðilum. Hin er sú að lóga öllum karlmönnum!
Þorsteinn Siglaugsson, 18.12.2007 kl. 16:44
Launamunur er ekki 3% rétt er að konur hafa 1,4% hærri laun en karlar sambærileg laun eru laun á klukkustund fyrir sambærilegt starf. Vitna einnig i könnun rafiðnaðarsambandsins þar sem kemur fram að konur hafa mun hærri laun en karlar fyrir sömu vinnu á tímaeiningu. Lengri vinnudagur telst ekki launaójöfnuður og skal því ekki miða við vinnustundafjölda heldur kaup pr klukkustund. Svo er gott að vita að það er jafnréttisstimpill að borga konum hærri laun. Var þetta ekki um jafnrétti annars? Eða eru sum dýrin jafnari en önnur ?
Jón Aðalsteinn Jónsson, 19.12.2007 kl. 11:03
Vil benda á að það gengur alls ekki upp að lóga öllum karlmönnum! Það væri nóg að halda einum á hverjar 1000 konur, en einhverja karlmenn þarf
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.12.2007 kl. 16:35
Þorsteinn, MaggaStína, Jón og Anna: Takk fyrir innlitið.
Það er hægt að skoða launamun út frá fjölmörgum forsendum, Jón. Sá kostur að skoða heildarlaun óleiðrétt út frá vinnutíma eða öðru snýst um möguleika fólks til framfærslu. Hér var leiðrétt fyrir starfi, starfssviði, aldri og starfsaldri. Vilja karlar yfirvinnu? Vilja konur yfirvinnu? Fá annaðhvort karlar eða konur frekar yfirvinnu? Ég þori ekki að fullyrða hvort 1,4% munurinn er marktækur tölfræðilega eða ekki, en það væri væntanlega best að báðar tölur, heildarlaun og dagvinnulaun, væru jöfn. Hvorugt er þó afgerandi launamunur og það skiptir mestu. Heildarlaunamunurinn var 8% fyrir tæpum tíu árum þannig að hér er breyting.
Ert þú, Þorsteinn, að lýsa minni launamun kynja hjá hinu opinbera - eða því að konur vinna meira hjá hinum opinbera? Kannski mætti jafna launamuninn með því að einkavæða spítala og skóla en þjóðnýta verktakafyrirtæki og togara. Mæli þó ekki með þeirri leið þótt vissulega sé hún stórkarlalegri en vandvirknisleg vinnubrögð Akureyrarbæjar og Skýrr.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 19.12.2007 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.