Þvílíkt sælgæti

Smile  ... er lífræna jógúrtin frá biobu.is. Þetta er jógúrt búin til úr lífrænni, ófitusprengdri mjólk að viðbættum lífrænum sykri og lífrænum bragðefnum, eins og t.d. kaffi eða mangó, nú eða bragðefnalaus. Fram kemur á umbúðunum að kýrnar séu fóðraðar eingöngu á grasi en ekki á korni og að skiptiræktun og stjórnun beitarálags tryggi góða meðferð lands. Það sem gerir jógúrtina (og líka nýmjólkina) frá Bíóbúi sérstaka er að fitan aðskilur sig frá undanrennunni, eins og heima í gamla daga áður en allir fóru að drekka samlagsmjólk. Þannig getur maður ráðið því hvort maður borðar rjómahlutann sér og undanrennuhlutann sér eða hrærir þessu saman - helsti gallinn er sá að dósirnar eru svo pínulitlar að rjómajógúrtin er ekki mjög mikil. Sem sé: Umhverfisvæn og holl vara! Og kannski það sem er aðalatriðið: Þessi jógúrt er hreint sælgæti hvort heldur er með eða án bragðefna. Ég hef ekki fengið betri jógúrt hér á landi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagmar

Sammála, þetta er langbesta jógúrtið!

Dagmar, 3.7.2007 kl. 20:46

2 Smámynd: svarta

Fyrir algjöra tilviljun borðaði ég enskt "krakka" jógúrt í morgun. Hafði ekki farið í búðina og þurfti að sætta mig við það sama og ég gef börnunum. Þetta var algjör hryllingur. Sætari mjólkurafurð hef ég nú aldrei smakkað. Enda efa ég að það sé nokkur mjólk í þessu. Þetta er örugglega bara lím með jarðaberjabragði.  

svarta, 4.7.2007 kl. 10:25

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Svarta: Þú verður að gefa börnunum almennilega jógúrt - fullt til af fínnni jógúrt Bretlandi er ég viss um

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 4.7.2007 kl. 11:05

4 Smámynd: svarta

Fór að velta því fyrir mér hvort þetta væru einhverskonar strategies of distinction hjá þér að fjalla um lífræna jógúrt og listræn súkkalaði fjöll á blogginu. Ertu ekki að lýsa þínvum norðlenska bourgeois smekk?  Gengur illa að einbeita mér að verkum og verkjum. Kveðja frá Sheffield.

svarta, 4.7.2007 kl. 13:17

5 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Bourgeois-smekk? Nei, ég held að þetta sé einhver önnur tegund, sennilega tegund þeirra sem eru í norðvesturhorninu, en kannski í bland einhver önnur tegund stjórnlistar ...

Svo má líta á þetta sem einhvers konar áróður

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 4.7.2007 kl. 14:58

6 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Tek undir með Ingólfi, jógúrtin er allgjört sælgæti og ég sleiki lokið skammlaust -

Kristín Dýrfjörð, 5.7.2007 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband