Færsluflokkur: Bloggar
10.8.2007 | 07:45
Bannið eða veðrið?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.8.2007 | 19:58
Ekki mikil sjálfsgagnrýni eða greining á ferðinni
![]() |
Ákvörðun um að banna ungmennum að tjalda tekin af illri nausyn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2007 | 18:48
Einkavæðing skólakerfisins á blússandi ferð
![]() |
Samið um uppbyggingu leik- og grunnskóla á Keflavíkurflugvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.8.2007 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.8.2007 | 13:08
Halló Akureyri! Halló Akureyri?
Nýjasta nýtt í verslunarmannahelgarskemmtunum á Akureyri er að meina fólki á aldrinum 18-23 ára aðgang að tjaldsvæðum bæjarins, og hafa fáir komið til varnar þeirri ákvörðun. Ég á bágt með að skilja þessa ákvörðun og þar með á ég erfitt með að vera með henni eða á móti af efnislegum ástæðum. Hins vegar heyrist mér og sýnist á öllu að þetta bann verði sveitarfélaginu til verulegs álitshnekkis og verði þannig hluti af röð hneyksla í kringum verslunarmannahelgarskemmtanir í bænum. Þannig var að fyrstu árin eftir að ég flutti til Akureyrar fyrir 12 árum var haldin hátíð sem nefndist Halló Akureyri sem mér fannst alltaf vera stytting á "hallærislega Akureyri" og ég bar fram með "dl" í halló til að tákna það. Sú hátíð varð alræmd vegna fyllirís og slæmrar umgengni og í kjölfarið var sett gríðarlega mikil girðing utan um tjaldsvæðið rétt við hús Háskólans við Þingvallastræti þar sem ég vinn; Háskólinn og tjaldsvæðið deilar raunar bílastæði. Ég kom þar inn á bílastæðið á frídegi verslunarmanna 2004 og þvílík umgengni - og þá var samt búið að skipta um heiti á Halló Akureyri.
Ég óttast að ákvörðunin um aðgangsbann 18-23 ára, hversu vel meint sem hún kann að hafa verið, sé fáránleg almannatengslamistök og til þess fallin að láta Akureyri líta hallærislega út. Kjörorð bæjarins er: Akureyri - öll lífsins gæði. Nema fyrir 18-23? Við í Háskólanum viljum t.d. fá fleiri nemendur, m.a. fólk á aldrinum 20-23 ára, og bjóðum margvíslegt spennandi nám fyrir fólk á þeim aldri, en það er líka mikilvægt að nemendunum líði vel í bænum, og reyndar hafa bærinn og Háskólinn unnið saman að því. En bæjarfélagið þarf að fara yfir það að lokinni helginni hvort aðgangsbannið að tjaldsvæðunum hafi verið skynsamlegt og skoða þá vel umræðuna sem hefur farið fram og þær ábendingar sem hafa komið fram frá ungu fólki á öllum aldri á síðustu dögum.
![]() |
Aldurshópurinn 18-23 ára fær ekki aðgang á tjaldstæðum á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.8.2007 | 13:11
Til hamingju Kristín - velkomin norður
![]() |
Kristín Ástgeirsdóttir skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.8.2007 | 22:58
Gott mál: gjaldtaka af miðbæjarbílaumferð
Styð notendagjöld af þessu tæi þar sem maður á val og getur notað almenningssamgöngur. Styð ekki notendagjöld af heilbrigðisþjónustu þar sem maður á ósköp lítið val verði maður veikur. Mér skilst að bílaumferð í London hafi minnkað nægilega til að þeir sem borga gjaldið hafi greiðari leið og leikurinn er til þess gerður. Ég vil að skattarnir mínir fari í heilbrigðisþjónustu og menntamál en ekki í hernaðarbrölt eða mislögð gatnamót.
Umferðaröngþveiti eru afar sjaldgæf hér á Akureyri; í mesta lagi þarf maður að bíða eftir ljósum í tvær lotur í beygjuljósum og mikilli umferð (á akureyrskan mælikvarða). Yfirvöld bæjarins ákváðu að ekki yrðu greidd gjöld fyrir að ferðast í strætó - mér skilst það hafi verið svo í Reykjanesbæ í nokkur ár - og nú hyggjast yfirvöld á höfuðborgarsvæðinu feta sama veg að einhverju leyti. Gott mál.
![]() |
Vegtollur tekinn upp í Stokkhólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.8.2007 | 07:34
Virkjanir án mats á umhverfisáhrifum
Múlavirkjun á Snæfellsnesi er nú til umræðu eftir að í ljós kom að hún var byggð öðruvísi en til stóð. Stöðuvatn, sem átti að haldast óskert, var gert að uppistöðulóni og nú er komið í ljós að ekki voru rannsakaðar fornminjar sem fóru undir vatn. Virkjunin slapp við mat á umhverfisáhrifum sem er helsta aðferðin til að almenningur geti látið í ljós álit sitt á framkvæmdum. Stífla við nýlega virkjun í Eyjafirði brast í flóðum í vetur; sú virkjun fór ekki í mat á umhverfisáhrifum. Og nú hefur verið sóst eftir því að virkjun í Hverfisfljóti í Skaftárhreppi fái undanþágu frá mati en henni fylgir líka vegur um ósnortið land; vonandi sér umhverfisráðherra ástæðu í ljósi reynslunnar að krefjast mats, ekki bara af umhverfis- og náttúruverndarástæðum, heldur líka þeim að undirbúningur gæti orðið vandaðri við slíkar framkvæmdir ef þær eru betur undir búnar. Nægar náttúruverndarástæður eru þó gegn virkjuninni í Skaftafellssýslu og það er ljóst að Múlavirkjun er hæpin af slíkum ástæðum, a.m.k. eins og hún var byggð í trássi við kynnt áform.
![]() |
Óskráðar fornminjar fóru undir vatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2007 | 10:26
Útlendir ökumenn bresta í grát
Útlendir ökumenn bresta í grát vegna hárra sekta er fyrirsögn í Mogga í dag (bls. 2). Á gær og fyrradag voru útlendir ökumenn í meiri hluta þeirra er voru stöðvaðir fyrir hraðakstur í umdæmi Blönduóslöggunnar. Sektin fyrir að aka á 111 km hraða er 50.000 kr., 37.500 með staðgreiðsluafslætti! Hið jákvæða við þessa frétt er Íslendingum sem aka of hratt fækkar en auðvitað er það neikvætt að fleiri skuli aka of hratt en Íslendingar. Óskiljanlegt er hvernig hraðamerkingar fara fram hjá útlendum ökumönnum og út í hött að kenna bílaleigunum um að segja ekki frá því hverjar sektirnar eru - nema ef það er virkilega ráðið gegn hraðakstrinum. Samt er of hraður akstur engum að kenna nema þeim sem ekur of hratt.
Munum svo að of hraður akstur er ekki einungis hættulegur fyrir mann sjálfan og tillitslaus gagnvart náunganum; heldur og eyðist meira eldsneyti og útblásturinn verður meiri á sömu vegalengd.
![]() |
Hraðakstur erlendra ferðamanna færist í aukana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2007 | 08:57
Heræfingar NATO og vopn til Sádi-Arabíu og Ísraels
Nú berast fréttir af heræfingum NATÓ hér á landi. Samtök herstöðvaandstæðinga hafa ályktað gegn heræfingunum sem eru ekki líklegar til að auka frið í heiminum, eða til hvers æfa herir sig? Aftur á móti get ég ekki að því gert að mér ofurlítið fyndið að heyra um að það eigi að gefa liðinu að borða sem vissulega er liður í íslenskri gestrisni sem hingað til hefur ekki verið viðhöfð gagnvart erlendu herliði.
Í gær komu líka fréttir af aukinni vopnasölu og hernaðarlegum Bandaríkjanna til Sádi-Arabíu og Ísraels - til mótvægis við uppgang Írans. Hér eru einræðisríki og ofbeldisríki studd. Á það að auka frið í heiminum?
![]() |
NATO ákveður eftirlit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2007 | 00:29
Frábær Sunna Gunnlaugs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)