Einstaklingar og samfélag

Í gær og fyrradag flutti ég ásamt félögum mínum í rannsóknarverkefninu GETA til sjálfbærni (http://skrif.hi.is/geta) tvo fyrirlestra. Sá fyrri verður birtur fljótlega í nettímaritinu Netlu (http://netla.khi.is) en sá síðari var á Þjóðarspeglinum, ráðstefnu um rannsóknir í félagsvísindum, birtur í nærri 1000 bls. ráðstefnuriti undir heitinu „Hvað þurfa einstaklingar að geta í sjálfbæru þjóðfélagi framtíðarinnar?“ Ég birti hér efniskynningu okkar á því erindi:

Með hliðsjón af stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun og stefnu Sameinuðu þjóðanna um áratug menntunar til sjálfbærrar þróunar (2005–2014) var útbúinn var greiningarlykill til að finna hvar í aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla er fjallað um efni sem gæti nýst við menntun til sjálfbærrar þróunar. Greiningarlykilinn skiptist í sjö þætti: Gildi, viðhorf og tilfinningar gagnvart náttúru og umhverfi; þekking sem hjálpar til við að nota náttúruna skynsamlega; velferð og lýðheilsa; lýðræði, þátttaka, geta til aðgerða; jafnrétti og fjölmenning; alþjóðavitund, hnattrænn skilningur og efnahagsþróun og framtíðarsýn. Við teljum að þessir efnisþættir endurspegli hvað einstaklingar þurfi að geta í sjálfbæru samfélagi framtíðarinnar. Menntun til sjálfbærrar þróunar snýst um að börn og unglingar öðlist hæfni og vilja til að verða virk í samfélaginu og taki þátt í breyta því og bæta — ekki eingöngu sem einstaklingar heldur líka með hæfni sinni í samstarfi við aðra, utan og innan veggja skólanna. Tilvísun: Auður Pálsdóttir, Björg Pétursdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Kristín Norðdahl. (2009). Í Gunnar Þór Jóhannesson og Helga Björnsdóttir (ritstjórar), Rannsóknir í félagsvísindum X. Félags- og mannvísindadeild. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2009 (bls. 17–27). Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband