Hreppaflutningar aldraðra og skerðing þjónustu við geðsjúka

Laugardaginn 9. janúar verður mótmælaganga frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg á Akureyri kl 15.00. Við mótmælum hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun dagdeildar geðdeildar, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.

Og svo á að setja heilbrigðisstofnanir annars staðar á Norðurlandi undir þá stjórn sem hagar sér svona, sbr. nýjasta útspil frjálshyggjuráðherrans Guðlaugs Þórs Þórðarson. Um sameiningu heilbrigðisstofnana er margt að segja og örugglega á eitthvað af því rétt á sér. Þannig vitnar forstöðumaður rekstrar Heilbrigðisstofnunar Austurlands um mikinn sparnað af sameiningu þar fyrir ellefu árum. Hér á Norðurlandi hefur heilbrigðisþjónusta í Þingeyjarsýslu með miðstöð á Húsavík verið sameinuð í áföngum sem hafa tekið marga áratugi. Þar eru heilsugæsla og spítali undir einni stjórn og gefst vel. Í þessari stóru sameiningu á hins vegar ekki að sameina sjúkrahúsið á Akureyri og heilsugæsluna sem væri rökrétt, meðal annars þar sem þjónustu heilsugæslustöðvar utan dagvinnutíma fer fram á sjúkrahúsinu. Og sérfræðilæknisþjónustuna á ekki heldur að sameina, hún skal fara fram úti í bæ. Væri slík sameining ekki vænlegri til bæði betri heilsu og sparnaðar? Og hvað um sérfræðibáknið  á höfuðborgarsvæðinu?  Það sem er á móti þessari sameiningu hér á Norðurlandi (og annars staðar á landinu), og hefur örugglega verið á móti henni líka á Austurlandi þar sem ég þekki minna til, er að stjórnun þjónustunnar færist fjær fólkinu í héraði, í þessu tilviki til stjórnenda sem eru nákvæmlega núna að skerða þjónustu við aldraða, geðsjúka og ungbörn. Hér á t.d. núna að færa deild aldraðra frá Akureyri fram í Eyjafjarðarsveit í Kristnes, sem er innan sömu stofnunar. Getum við búist við sambærilegum tilflutningum við sameininguna? Við þetta má bæta því að margvísleg samvinna er milli heilbrigðisstofnana á Norðurlandi - en verður hún meiri eða betri eða skilvirkari við sameiningu undir einni stjórn á Akureyri?

Markmið frjálshyggjuráðherrans er hvorki sparnaður né betri heilsa. Honum er kannski ekki sama um þetta, ég veit ekki hvernig hann er innréttaður sem persóna – en ef þetta væru markmiðin væri sérfræðibáknið tekið fyrir. Nei, markmið Guðlaugs Þórs er einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar. 

Á Ráðhústorgsfundinum á laugardaginn hér á Akureyri mun Rósa Eggertsdóttir taka til máls og í lokin munum við takast í hendur og hugleiða réttlæti. (Nánari upplýsingar um gönguna: Guðrún Þórs, s. 663 2848.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Verð með ykkur í anda.

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 9.1.2009 kl. 08:57

2 identicon

Tek undir þetta og hef ábyggilega gott af því að ganga smá á laugardaginn!

Tryggvi R. Jónsson 9.1.2009 kl. 10:57

3 identicon

Baráttukveðjur frá Hafnarfirði.

Markmiðið með þessum breytingum er einkavæðing undir yfirskini hagræðingar.

Hér er verið smygla kröftum kapítalismans inn í heilbrigðiskerfið- sömu kröftum og beitt var á efnahagskerfi þjóðarinnar og árangurinn verður sá sami.

Þráinn Kristinsson 9.1.2009 kl. 11:09

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Katrín Anna, Tryggvi Rúnar, Þráinn: Takk fyrir innlitið og ábendingar þínar, Þráinn.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 9.1.2009 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband