Varðar okkur um kynhneigð forsætisráðherra?

Það er mjög athyglisvert að fylgjast með fréttum af kynhneigð mögulegs verðandi forsætisráðherra Íslands, Jóhönnu Sigurðardóttur. "Iceland is set to become the first country to have an openly-queer head of government", segir einn vefmiðill [Ísland verður líklega fyrsta landið til að hafa yfirlýsta samkynhneigða manneskju sem æðstu manneskju ríkisstjórnar]. Sem minnir okkur á að við vitum yfirleitt ekkert hver er kynhneigð stjórnmálafólks því að hjúskaparstaða hefur í gegnum tíðina ekki verið örugg leið til að segja til um kynhneigð. Þannig veit ég ekki hvort Jóhanna verður fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra Íslands eða fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra heims. Reyndar eru meiri líkur á því að hommar eða tvíkynhneigðir karlar hafi gegnt slíku starfi án athygli út á það en að lesbíur eða tvíkynhneigðar konur hafi komist til sömu metorða, einmitt vegna þess að karlar hafa að mestu einokað þetta starfsheiti í veröldinni. Þessi umræða er um margt jafngáfuleg og að segja að Geir Haarde hafi verið síðasti gagnkynhneigði forsætisráðherrann úr röðum Sjálfstæðisflokksins. Ekki að ég viti nokkurn skapaðan hlut um kynhneigð hans og kemur hún ekki við - en ég vona að hann verði sá síðasti úr Sjálfstæðisflokknum.

En hvað um það: Á sama hátt og þessi umræða getur hæglega dregið athygli frá verkum Jóhönnu, hver sem þau eru, hef ég samt ekki á móti því að um kynhneigð hennar sé rætt ef það eykur virðingu landsins út á við. Við þurfum á því að halda á þessum tímamótum.


mbl.is Jóhanna vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Sigurðarson

Ég held að kynhneigð Jóhönnu muni ekki auka virðingu landsins út á við. Mundu að samkynhneigðir eru minnihlutahópur sem njóta virðingar hjá minnihlutahópi vegna kynhneigðar sinnar.

Baldur Sigurðarson, 29.1.2009 kl. 12:31

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Baldur. Samt held ég athyglin verði meira jákvæð en neikvæð.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 29.1.2009 kl. 12:42

3 Smámynd: Sverrir Einarsson

Sem svar við fyrirsögn; NEI

Fordómafullt fólk mun enn vera til, en það er einn minnihlutahópurinn í veröldinni sem þarf að taka tillit til.

Sammála þér Ingólfur, þetta virkar á jákvæðan hátt, annað væri ómálefnaleg umræða.

Sverrir Einarsson, 29.1.2009 kl. 13:10

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þarf að taka tillit til fordómafulls fólks? Ekki ef það er að fettast út í kynhneigð annars fólk. Því kemur nefninlega bara ekkert við hver sefur hjá hverjum, á meðan það er ekki maki þeirra eða dóttir undir lögaldri.

Ég hafði ekki hugmynd um Jóhönnu fyrr en fjölmiðlar fóru að garga þetta. Veit það núna, en álit mitt á henni er óbreytt, enda skiptir það mig engu hjá hverjum hún kýs að kúra sig.

Villi Asgeirsson, 29.1.2009 kl. 13:30

5 Smámynd: Offari

Það eru verkin sem tala ekki kynhneigðin.

Offari, 29.1.2009 kl. 15:00

6 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Sverrir,Villi, Hilmar og Offari -

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 29.1.2009 kl. 15:30

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég get ekki séð að kynhneigð Jóhönnu né nokkurns annars komi okkur neitt við.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 29.1.2009 kl. 16:09

8 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Sæll Ingólfur.

Taktu eftir því að þetta eru stórar fréttir úti í heimi sem urðu tilefni til frétta hér á landi. Þetta var okkur Íslendingum ekki tiltökumál og það segir nokkuð um stöðu okkar þjóðar í þessum efnum. Í öðrum löndum eru þetta hins vegar stórfréttir vegna þess að þar er réttindabarátta til muna aftar en á Íslandi.

Þetta var eiginlega svona "við erum fræg erlendis" frétt sem slegið var upp í íslenskum fjölmiðlum.

Mér finnst þetta varla á orð nefnandi en það segir meira um mig og mitt umhverfi held ég. Ég vil dæma eftir því hvað menn gera en ekki hvað menn eru.

Ragnar Bjarnason, 29.1.2009 kl. 23:36

9 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæll Ingólfur okkur varðar ekkert um kynhneigð Jóhönnu frekar en okkar varðaði um kynhneigð Geirs. Kannski allra minnst vegna þess að hún hefur ekki verið til opinberar umræðu hjá Jóhönnu frekar en kynhneigð Geirs hefur verið til umræðu. Jóhanna hefur mér vitnalega ekki verið sérstakur málsvari samkynhneigðra (umfram það sem hún er málsvari flestra minnihlutahópa). En hins vegar get ég skilið ákveðið stolt margra samkynhneigðra. Svona eins við Íslendingar erum stoltir af þeim sem gera það gott í útlöndum eða eins og þegar í litlum bæjarfélögum allir koma saman til að fylgjast með sinni konu eða manni í keppni.  Þannig get ég skilið og virt stolt samkynhneigðra með að eiga fyrsta yfirlýsta samkynhneigða forsætisráðherra í heimi. 

Kristín Dýrfjörð, 30.1.2009 kl. 00:05

10 Smámynd: Kristján Logason

Nei

En samt jú

í grunninn kemur okkur að ekki við. Um leið og hún er orðin opinber persóna og það ráðstýra þá breytist málið. Spurningin verður hvort þetta geti haft áhrif á starf hennar.

Sem fosætisráðstýra getur þetta haft áhrif á samskipti milli þjóða þó sennilega væri þetta erfiðara ef hún væri utanríkisráðstýra.

Er hún velkomin í öll lönd og ef svo er ekki, Viljum við þá nokkuð hafa samskipti við þau lönd.

Hefur þetta auglýsingagildi. Já að vissu leyti. Við þykjum svo skrítin núna hvort eð er að þetta litar þá stöðu enn glaðari litum.

Kristján Logason, 30.1.2009 kl. 05:31

11 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þetta mun skipta frekar litlu máli þegar fram líða stundir.   Enda afar langt frá því að vera aðalmálið -ekki satt ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 30.1.2009 kl. 07:17

12 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Guðrún Þóra, Ragnar, Kristín, Kristján, Hildur Helga, takk fyrir innlit og áhugaverðar umræður um efnið

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 30.1.2009 kl. 07:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband