Hugarfar gagnrýninnar hugsunar

Hvernig hugsar gagnrýninn maður? Hvað er lýðræði? Hvaða hlutverki gegna skólar í því að þroska gagnrýna hugsun og gildismat? Hvaða tækifæri gefur aukinn fjöldi innflytjenda okkur við þróa lýðræðið?

Svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum færðu á ráðstefnu sem kennaradeild Háskólans á Akureyri gengst fyrir laugardaginn 15. mars nk. í húsakynnum sínum í Þingvallastræti 23. Ráðstefnan er haldin til heiðurs Guðmundi Heiðari Frímannssyni sem gegndi starfi deildarforseta kennaradeildar fjórtán fyrstu starfsárin en lét af þeim störfum sl. haust. Guðmundur er nú prófessor í heimspeki við deildina og flytur aðalerindi ráðstefnunnar sem nefnist Hugarfar gagnrýninnar hugsunar. Á ráðstefnunni munu einnig tala Vilhjálmur Árnason og Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessorar við HÍ, og Hanna Ragnarsdóttir dósent við KHÍ. Sjá dagskrá.

Okkur sem nú stjórnum deildinni fannst upplagt að efna til ráðstefnu á þessum tímamótum en jafnframt er deildin 15 ára þessu ári sem er síðasta starfsár hennar sem deildar en hún verður hluti af nýrri hug- og félagsvísindadeild Háskólans. 

Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir, það er enginn aðgangseyrir og það eru veitingar að henni lokinni. Hún hefst kl. 13 og lýkur, ja, ætli hún klárist nokkuð fyrr en maturinn er búinn. En formlega á henni að ljúka kl. 16!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Takk fyrir að minna mig á. Hlakka til að fá meira að heyra þegar nær dregur.

Kristín Dýrfjörð, 5.3.2008 kl. 23:36

2 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Þarna sýnist mér vera um mjög áhugaverða ráðstefnu að ræða.  Gagnrýnin hugsun virðist lítt eiga upp á pallborðið þessi árin.  Mér virðist sem sumu fólki finnist gagnrýnin hugsun vera nöldur og best sé að lifa þannig að vera ekkert að rugga einhverjum báti - eða hreinlega ákveðinn rétttrúnaður eins og t.d. á markaðsöflin.

Gangi ykkur vel. 

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 6.3.2008 kl. 12:30

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Kristín og Alma Jenny, takk fyrir innlitið. Þetta verður mjög skemmtileg ráðstefna

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.3.2008 kl. 20:26

4 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Þetta er áhugaverð ráðstefna. Ég sæi umræðuþjálfun meðal íslenskra nemenda upp í gegnum skólakerfið sem ágætis æfingu í þá átt. Nemendur í háskólum eru oft átakanlega illa búnir til að viðhafa rökhlaðnar samræður um málefni. Ég held að einn liðurinn í að kryfja hluti á gagnrýninn hátt sé að æfa sig, hlusta á aðra, spreyta sig sjálfur og velta upp málum. Gangi þér vel með ráðstefnuna.

Anna Karlsdóttir, 8.3.2008 kl. 17:09

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sammála síðasta ræðumanni, gæti ekki orðað það betur.

Það væri gaman að vera þarna og hlusta en því miður á ég ekki heimangengt - góða skemmtun.

Edda Agnarsdóttir, 10.3.2008 kl. 21:54

6 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Anna og Edda. Verður spennandi

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 10.3.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband