Ísland til fyrirmyndar

Ísland er til stakrar fyrirmyndar í heiminum með því að loka fátt fólk inni í fangelsum. Hér á landi voru árið 2006 aðeins 31,5 af hverjum 100.000 íbúum landsins í fangelsi (hagstofa.is), það mun vera um 0,03% af öllum Íslendingum samanborið við meira en 1% af fullorðnum Bandaríkjamönnum. Það munu reyndar ekki vera nema um fimm til tíu lönd sem hafa færri fanga hlutfallslega en Íslendingar. Mér sýnist að þessi hlutfallstala hafi meira að segja lækkað aðeins hér. Höldum áfram að lækka hana. Lokum fólk helst ekki inni og ef við lokum fólk inni sköpum föngum sem bestar aðstæður, t.d. til náms, og höfum tímann sem stystan.


mbl.is Fangafjöldi í hámarki í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Reyndar þurfum við að loka fleiri inni.  Við erum akkúrat hinumegin í öfgunum.  Veit ekki nákvæmlega hve marga, en giska á svona 100 í viðbót.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.2.2008 kl. 13:40

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta er nú kannski ekki komið til af góðu. Það er ekkert pláss í fangelsum landsins og dæmdir menn verða að bíða mánuðum saman, kannski árum, eftir að hefja afplánun. Það má segja að það sé biðlisti í íslensk fangelsi. Ef við hefðum fleiri og/eða stærri fangelsi væri hlutfallið örugglega annað.

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.2.2008 kl. 13:45

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Ásgrímur og Lára Hanna. Ég held við séum ekkert öfgafull heldur inni við beinið séum tilbúin til að gefa fólki séns, tilbúin til að styðja alla til að vera góðir; kannski vinnur fámennið með okkur í þessu, ég veit það ekki.

Varðandi biðlistann þori ég ekki að fullyrða að hann hafi fremur styst, þótt ég haldi það, en ég held ef hann yrði uppurinn þá yrði aftur sama tala. Sem sé, ég held að það yrði aðeins mjög tímabundin fjölgun.

Það er aftur á móti mjög bagalegt að einhver þurfi bíða refsingar og ég veit ekki hvar við erum í röðinni hvað það varðar.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 29.2.2008 kl. 15:34

4 Smámynd: Ásta Björk Solis

skapa fongum sem bestar adstodu?Hverslags refsing er thad A ekki bara ad gefa theim daglegt nudd og flatskja,vin med humarrettinum osfr.Eg helt ad folk sem brytur af ser aetti ad verda refsad helst nogu vel til ad vilja ekki fara aftur i fangelsi.Eg veit ad sumir brjoti af ser a vissum arstima til ad hafa mat og husaskjol a veturnar.Hvernig vaeri ad bua vel ad folki sem er ekki ad brjota af ser en vantar thessar adstaedur?

Ásta Björk Solis, 29.2.2008 kl. 17:15

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú hefur, Ingólfur, sennilega ekki séð helgarblað DV (29/2-2/3) né forsíðuna þar: 'Níundi hver fangi lést 2004-2008. 47 FANGAR LÁTNIR. Neyðarkall af Litla-Hrauni ...'

Þetta eru svo háar tölur, að það hefur veruleg áhrif á þessa prósentutölu sem þú varst að tilfæra. Og spurningar vakna: Hvað veldur? Deyja þessir menn vegna sjálfsvíga eða af heilsuleysi eða (eitur)lyfjaneyzlu eða einhverju öðru? Fróðlegt væri að fá svör við því, en eitthvað kemur þó fram í DV-greininni um þetta, á bls. 10-13. Eitt er a.m.k. ljóst: að vanlíðan í hópi fanga mun vera miklu meiri en þjóðin hefur gert sér grein fyrir. Það er þá meira verkefni til að vinna í að bæta heldur en hitt að básúna ágæti þessa málaflokks hjá okkur.

Jón Valur Jensson, 29.2.2008 kl. 22:24

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

PS.  En taktu þetta ekki sem gagnrýni á þig.

Jón Valur Jensson, 29.2.2008 kl. 22:28

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Ásta Björk og Jón Valur.

Ásta: Ég held að tölurnar sem Jón Valur nefnir um "neyðarkall" fanga séu e.t.v. bestu rökin fyrir því að fangelsi EIGA að vera staðir þar sem fólki gefst kostur á að bæta sig. Já, Ásta, daglegt nudd ef fanginn glímir við vöðvabólgur. Til er orðið betrunarvist og má vel vera að það sé gamaldags en það lýsir samt tilgangi þess að loka fólk inni tímabundið: til að gefa því færi á að breyta lífsstíl, aðstoða við það, undir eftirliti. Nýlegt dæmi er að fangar á Litla-Hrauni sjá um að elda ofan í sig sjálfir. Og af því að þú býrð í Bandaríkjunum þá gætum við reyndar eitthvað af þeim lært um samfélagsþjónustu sem refsingu eða yfirbót í stað innilokunar.

Jón Valur: Fyrirsögnin hjá mér er glannaleg, þótt hún sé rækilega skilyrt í fyrstu málsgreininni, og ábending þín réttmæt.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 29.2.2008 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband