... á fyrsta stjórnardegi Ólafs F. og Vilhjálms ...

... er fólki ráðlagt að halda sig heima. Skyldi Ólafur fara að þessum ráðum? ... Nú var að berast tilkynning í útvarpi um að fræðsluyfirvöld í Reykjavík bæðu foreldra um að hafa börnin heima vegna óveðurs.
mbl.is Fólk haldi sig heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ég segi nú bara: Fall er fararheill ... eða fárviðri er fínt upphaf...

Markús frá Djúpalæk, 25.1.2008 kl. 08:33

2 Smámynd: svarta

Ég sendi nú dóttur mína fótgangandi í skólann í morgun. Hér er logn og grunaði mig ekki að úti væri óveður.

svarta, 25.1.2008 kl. 08:41

3 identicon

Þó að mér finnist nú alvg hægt að mæta og sjálf mætti ég í tíma þá finnst mér nú algjör óþarfi að kenna öllu sem aflaga fer á nýkjörna borgarstjórn þrátt fyrir að maður sé á móti henni. Kenndu vöntun á snjóplógum um.

Þar að auki mæta skólakrakkar 8 á morgnana og því nokkuð seint að mæla með að hafa börnin heima og hafa foreldrar yfirleitt mátt ráða hvort þeir sendi börnin í skóla eða ekki á morgnana þegar veðrið er svona þannig þetta var þónokkuð vanhugsað því þetta þarf almennt að tilkynna um 7 leitið til að það hafi áhrif. Borgarstjóri hefur ekkert með skólahaldið að gera heldur.

Er ekkert betrað reynað aðlagast nýjum aðstæðum og sætta sig við orðinn hlut heldur en að pirrast endalaust, þetta breytist ekkert fyrr en í næstu kostningum sem verða á enda kjörtímabilsins. 

Tjásan 25.1.2008 kl. 08:42

4 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ég er viss um að það fer líka bráðum að gjósa einhvers staðar!

María Kristjánsdóttir, 25.1.2008 kl. 08:54

5 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Þegar Bush eldri réðist á Írak gaus Hekla. Ég vona að ekki gjósi mjög nálægt þéttbýlinu.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.1.2008 kl. 09:08

6 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Eru menn tapsárir?

Ekki fóru sjallarnir að grenja þegar þeir féllu úr meirihluta, ef VG liðar hefðu einhverja sjálfsvirðingu þá létu þeir ekki svona eins og smábörn. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.1.2008 kl. 09:22

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Fréttir hafa borist af Norðlendingum búsettum í Rvík sem gera mikið grín að Reykvíkingum fyrir hvað sé óveður, og ég neita ekki að hafa einhvern tíma tekið þátt í svoleiðis gríni þegar ég átti heima í Rvík sem voru 14 ár. Hins vegar er gott ráð að halda sig heima í vondu veðri, hvar sem maður býr, sérstaklega þegar snjóruðningstækin hafa engan veginn undan. Það léttir líka á fyrir tækin að ryðja göturnar ef færri eru á ferðinni.

Hér er enginn "tapsár", J. Einar, ef þú ert að vísa í óánægju með nýjan meiri hluta í Reykjavík; heldur er um að ræða hörkugagnrýni á alvarleg vinnubrögð. Það getur vel verið að ég eigi eftir að blogga eitthvað um stjórnmálaástandið í Reykjavík öðruvísi en í skensi. Hins vegar léttir skensið lundina ...

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.1.2008 kl. 09:39

8 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Fyrirgefðu, vitlaust orðaval hjá mér svona í morgunsárið. (9:22 ac: antes caffeinum)

Ég meinti; ómálefnalegur, barnalegur, umhverfiskommabullmálflutningur.

Það þarf að breyta landslögum til þess að þetta kvabb hafi einhver áhrif og ég sé ekki að það sé að fara að gerast. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.1.2008 kl. 10:18

9 Smámynd: Ingimar Eydal

J. Einar Valur, þú gleymdir að bæta við; afturhaldskommatittur....??

Ingimar Eydal, 25.1.2008 kl. 11:31

10 Smámynd: svarta

Ég er svona sófakommi og umhverfisspillir. Hef eytt deginum í að gera grín og gys af Reykvíkingum og færðinni. Hefði betur eytt deginum í skrif og skuldir.

svarta, 25.1.2008 kl. 15:30

11 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ingimar, það þarf ekki alltaf að segja hið augljósa.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.1.2008 kl. 15:32

12 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ingimar og J. Einar: var ekki afturhaldskommatittsflokkur notað um Samfylkinguna? Minnir það ...

Svarta: Hmm, hér fauk aðeins áðan, akkúrat þegar ég ætlaði að fara fá mér kaffi niðri í bæ

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.1.2008 kl. 16:06

13 Smámynd: svarta

Var að horfa á fréttir á stöð 2. Þar var kona að tala um kind sem bar nú í upphafi þorra. Hún var spurð hvort hún ætti von á fleiri lömbum nú á næstunni, en konan taldi það ólíklegt því hún vissi hvenær hinar ærnar höfðu komist í hrútana. Þetta er frábærlega orðað hjá bóndanum. Yfirleitt var talað um að hrútarnir kæmust í ærnar í minni sveit. Þetta er kvenfrelsi. Eða ærfrelsi. Good stuff :)

svarta, 25.1.2008 kl. 18:52

14 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Hmmm, svarta ... var þetta Ólafi og Villa að kenna? Eða voru þeir hrútarnir? Hmmm

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.1.2008 kl. 19:03

15 Smámynd: svarta

Kvenfrelsið er náttúrulega Ólafi eða Villa að "þakka", nema hvorutveggja sé, og bæði í senn, og þau hjón bæði. Nei þú svarar seint og illa tölvupósti og mér fannst þessi bóndi eitthvað svo yndislega feminískur og ákvað ég því að klína ærfrelsinu á Ólaf :)

svarta, 25.1.2008 kl. 21:01

16 identicon

Bush eldri réðst á Kuwait en ekki Írak, mig minnir líka að sama dag hafi einhver mjög frægur látist, það var a.m.k. þrennt sem gerðist þennan dag

Andrea 26.1.2008 kl. 00:43

17 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Bush eldri talaði sjálfur um "frelsun Kúveits" sem Írakar hernámu nokkrum mánuðum fyrr.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 26.1.2008 kl. 12:03

18 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það hefði nú verið svolítið snjallt ef Ólafur hefði farið eftir þessum ráðleggingum - bara svona til að sjá hvernig viðbrögðin hefðu verið!

Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 15:14

19 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Edda, hann hefði sýnt rétt fordæmi með því ...

En kannski var hann löngu farinn af stað eins og grunnskólabörnin. - mér skilst líka að það hafi verið fólk á sumardekkjum sem var vandinn

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 28.1.2008 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband