Breytt viðhorf til friðunar húsa

Ég held að viðhorf til húsafriðunar séu að gerbreytast - og mikil umræða er nú í samfélaginu um friðun götumynda, menningarlandslag o.s.frv. ... og af hverju haldið þið að Newsweek hafi gert Laugavegi sérstök skil sem chic hér í haust? Ekki vegna nýbygginga ... Sigur Frjálslynda flokksins í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum var áreiðanlega til kominn vegna þess að flokkurinn var gegn því að samþykkja stórfellt niðurrif húsa við Laugaveg. Sem betur fer taka fulltrúar annarra stjórnmálaflokka nú í vaxandi mæli undir þetta og vilja endurskoða fyrri ákvarðanir. Þá hefur þingmaður VG, Árni Þór Sigurðsson, fv. borgarfulltrúi lagt fram frumvarp til laga á Alþingi um húsafriðun í því skyni að styrkja húsafriðun.

Eitt af því sem ég hef séð undanfarna daga er að lyfta núverandi húsum við Laugaveg 4-6. Þetta var gert við húsið á suðvesturhorni Glerárgötu og Strandgötu hér á Akureyri fyrir nokkrum árum og tókst vel. Og auðvitað við fjölda annarra húsa.


mbl.is Ráðherra friði Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Er fólki alvara að vilja friða þetta ljóta hús. Á Sorpu með brakið, því fyrr því betra.

Halla Rut , 8.1.2008 kl. 18:36

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er farin að halda að Halla Rut sé að stríða fólki. Bendi á pistil hér og athugasemdir.

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.1.2008 kl. 21:14

3 identicon

Sammála þér að aðgerðin að lyfta húsinu  á horni Glerárgötu og Strandgötu tókst afar vel. Mér finnst þessi þróun af hinu góða. Það er líka alveg nauðsynlegt að fólk standi vaktina eins og berlega kom í ljós austur á fjörðum þegar verktaki fór að rífa niður innréttingarnar frá ÁTVR.

Anna Ólafsdóttir (anno) 8.1.2008 kl. 21:19

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Mjög athyglisverð greinin í Mogganum í dag, þar sem mannfræðingyr býðst til að kaupa alla húsaröðina og gera hana upp á sinn kostnað hvortsem húsin standi þarna eða verði flutt.

Edda Agnarsdóttir, 8.1.2008 kl. 21:32

5 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Greinin í mogganum var allrar athygli verð. Nú er bara að heyra hvað ráðherra segir við yfirlýsingu húsafriðunarnefndar. Vona að það verði húsunum í hag

Anna Karlsdóttir, 8.1.2008 kl. 22:51

6 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, ég vona að hún standi sig aftur. En það þarf aldeilis að koma einhverju skikki á þessa skipulagsnefnd borgarinnar og fara að ræða oní kjölinn þau miklu áhrif sem verktakar hafa orðið á útlit þessarar borgar - og hvað þátt hátt lóðaverð hafi í því sambandi.

María Kristjánsdóttir, 9.1.2008 kl. 00:25

7 Smámynd: Sigurjón

Þetta eru bæði forljót hús.  Svo má glöggt sjá að næsta hús við hliðina á Lv. 6 er mun hærra en þau tvö, þannig að ekki skekkir þetta götumyndina meira en svo að rétta hana bara við aftur!

Sigurjón, 9.1.2008 kl. 00:33

8 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, öll sömul - þetta eru athyglisverðir tímar

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 9.1.2008 kl. 09:25

9 Smámynd: Kári Harðarson

Ég vil friða götumyndina, ekki húsin.

Þetta er eins og að smíða tennur upp í gamalmenni, nýju tennurnar þurfa að vera svolítið skakkar og gular til að falla inní, en það er ekki þar með sagt að gömlu brunajaxlarnir þurfi að vera áfram. 

Evrópa er full af nýjum "gömlum" húsum sem falla svo vel að götumyndinni að túristar taka ekki eftir þeim.  Ef þau eru "feik" þá er nýprjónuð lopapeysa með hefðbundnu mynstri það líka.

Kári Harðarson, 9.1.2008 kl. 09:45

10 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Kári. Götumyndin gæti þá falist í alveg nýjum húsum sem væru í takti við þau hús sem fyrir eru?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 9.1.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband