Sannar skáldsögur

Núna er veriđ ađ flytja ţátt sem var frumfluttur sl. laugardag á rás 1 í Ríkisútvarpinu (ruv.is) um Fjalla-Bensa, sögupersónu Gunnars Gunnarssonar sem hann byggđi á Benedikt Sigurjónssyni, Mývetningi, sem stjúpfađir minn talađi um sem Bensa Sigurjóns. Og annar ţáttur var um Bensa á sunnudagsmorguninn var. Í ţćttinum núna er Arngrímur Geirsson, kennari og bóndi í Álftagerđi, ađ rćđa um Bensa, sannleiksgildi Ađventu og segir frá ţví ţegar frćndi Bensa ţýddi bókina úr dönsku (sem hún var skrifuđ á) og ţví ţegar hann sagđi "nú lýgur hann" [Gunnar]. Arngrímur ţekkti Bensa á sínum tíma ţegar Arngrímur var barn.

Benedikt í sögu Gunnars er ekki sama persóna og Bensi Sigurjóns; Gunnar bjó hins vegar til listaverk eftir ađ hafa heyrt um eftirleitir Bensa. Hugsanir sögupersónunnar Benedikts eru ţó trauđla hugsanir Bensa Sigurjóns, eins og jafnvel mátti skilja á sunnudagsţćttinum. Framtak Skúla Björns hjá Gunnarsstofnun um ađ fara á eftirleitarslóđir er aftur á móti afar skemmtilegt framtak. Ţessar eftirleitir voru miklar ţrekraunir og stjúpfađir minn, Jón Ţorláksson bóndi á Skútustöđum, sagđi mér margar sögur úr ţeim. Arngrímur sagđi eina ţeirra.

Fyrir jólin kom út annađ listaverk byggt á sannsögulegum atburđum, Rimlar hugans, eftir Einar Má Guđmundsson, ástarsaga Einars Ţórs og Evu. Hvađ af ţeirri er sögu eru sagnfrćđilegar stađreyndir og hvađ af ţví er skáldskapur, sannur skáldskapur, veit ég ekki. Sagan er hins vegar ótrúlega spennandi saga og gefur eiginlega ekkert eftir helstu spennusögunum fyrir en er ţar fyrir utan fallega ástarsaga. Sannar skáldsögur eru sá búningur sem góđur rithöfundur gefur atburđum sem gerđust.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Sćll Ingólfur! 

Gaman, ég hlakka til ađ lesa rimla hugans.

Haha Af ţví varst ađ spyrja mig út í ćttfrćđina um daginn og er svona ćgilega ófróđ um, ţá veit ég allavega ađ ég á ćttir mínar ađ rekja til Fjalla Bensa. En ég veit líka ađ forfeđur mínir fluttu búferlaflutningum vćntanlega úr Lođmundarfirđinum eđa Mjóafirđinum og enduđu á Mývatni, allavega um stund. Einhverjir forfeđur bjuggu á Kráká sem ég held ađ sé löngu fariđ í eyđi og ţannig skapast tengslin viđ Kálfaströnd. Jaja, mađur er alltaf ađ lćra meira um upphaf sitt.

Anna Karlsdóttir, 29.12.2007 kl. 13:18

2 Smámynd: Eyţór Árnason

Mamma gekk einu sinni úr rúmi fyrir Fjalla-Bensa og Sigurđ Lúter. Ţađ var víst skemmtileg sögustund í stofunni í Skógarseli ţađ kvöldiđ. Gleđileg jól frćndi.

Eyţór Árnason, 29.12.2007 kl. 23:36

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitiđ, Anna og Eyţór.

Kráká: Krákárbakki? Ţannig ađ ţú verđur alltaf meira og meira Mývetningur ...  Ţegar safniđ var rekiđ heim af afréttinum var alltaf borđađ nestiđ á Krákárbakka. Ađ vísu var ég oft í smölun vestur í Bakkamýri og komst ekki langa stund í nestiđ.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 30.12.2007 kl. 08:33

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband