Kennaraháskólinn fetar í spor HA

Á bls. 8 í Morgunblađinu í gćr, 12. nóvember, er sagt frá nýju fyrirkomulagi vettvangsnáms viđ KHÍ, svokölluđu heimaskólafyrirkomulagi. Ţar er m.a. sagt: "Mikilvćg atriđi eins og undirbúningur skólaárs ... hafi hingađ til ekki veriđ inni í starfsţjálfuninni". Ţetta á ţó ađeins viđ um hinn nćstum ţví 100 ára Kennaraháskóla (aldur ef taliđ er frá stofnun Kennaraskóla Íslands), ţví ađ í kennaradeild Háskólans á Akureyri hafa nemendur hennar fariđ í vettvangsnám í skólum mestallt nćstsíđasta námsmisseriđ sem einmitt byrjar í ágúst um leiđ og grunnskólastarf byrjar. Sambćrilegt námsmisseri er í leikskólakennaranámi HA.

Ţađ er ekki ađ ástćđulausu ađ ţetta fyrirkomulag er viđhaft ţví ađ eins og kemur fram í fréttinni er mikilvćgt ađ kennaranemar kynnist skólastarfinu öllu, ekki bara kennslu einstakra námsgreina, ţótt vitaskuld haldi kennsla og samskipti viđ nemendur áfram ađ vera ţungamiđja skólastarfs. Kennslan skilar hins vegar betri árangri ef kennari/kennaranemi skilur samhengi skólastarfsins. Enn fremur benda bćđi rannsóknir og reynslusögur til ţess ađ ţađ sé auđveldara fyrir hinn nýbrautskráđa kennara ađ hefja starf ađ hausti hafi hann í námi sínu gengiđ í gegnum sambćrilega reynslu.

Ég óska KHÍ til hamingju međ nýja fyrirkomulagiđ.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Harđardóttir

Já Ingólfur ţetta hljómar vel en svo er auđvitađ ađ vita hvernig gengur.  Ţetta á ađ vera til ađ brúa biliđ milli Kennaraháskólans  og skólanna og ţar finnst mér vanta mikiđ upp á.  Ţađ er ţví spennandi ađ sjá hvort fögur fyrirheit og undirritađ samkomulag dugi til ađ ţetta verđi ađ veruleika.

Rósa Harđardóttir, 13.11.2007 kl. 23:10

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband