Félagslegt ójafnrétti og menningarlegar hliðar menntunar

Mánudaginn 11. júní heldur Jenny Stuber, dósent í félagsfræði við University of North Florida fyrirlestur sem nefnist "Félagslegt ójafnrétti og menningarlegar hliðar menntunar" [Inside the College Gates: Education as a Social and Cultural Process]. Í rannsóknum sínum beinir Jenny sjónum að menningarlegum hliðum félagslegs ójafnréttis. Hún leggur áherslu á að félagslegt ójafnrétti þýðir ekki einungis að sumir hafi meiri efnahagslegar bjargir en aðrir, heldur einnig menningarlegar bjargir, til dæmis þekkingu og tengslanet. Þetta hefur þýðingu fyrir árangur fólks í skólakerfinu.

Fyrirlesturinn byggir á nýútkominni bók hennar, þar sem að hún rannsakaði áhrif efnahagslegar stöðu á árangur í háskóla. Fyrirlesturinn fer fram 11.

júní í stofu 101 í Odda kl. 12:00-13:00.

Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands, MARK Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna og Félagsfræðingafélag Íslands standa að fyrirlestrinum.

ÖLL VELKOMIN

 

*  *  *

On Monday, June 11th, Jenny Stuber, Associate Professor of Sociology at the University of North Florida will give a talk entitled “Inside the College

Gates: Education as a Social and Cultural Process” Her research focuses on the cultural aspects of social class inequality and works from the assumption that social class inequality reflects not simply the fact that some people have more economic resources than others, but also reflects the fact that some people have more valuable cultural resources than others--namely know-how and social connections (social and cultural capital). By looking at the cultural underpinnings of class inequality, her research asks questions about how people understand, enact, and use social class in their everyday lives. She is especially interested in how people understand social class and use their class-based resources within educational settings. Her assumption is that "success" within academic settings is only partially shaped by the unequal distribution of cognitive capital, human capital, and economic capital; it is also shaped by the unequal distribution and deployment of social and cultural capital and deployment of social and cultural capital.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Takk fyrir þetta. Mun mæta.

Mér leikur forvitni á að vita af hverju þú ert búinn að skipta yfir í "monotype"-letur, sem líkir eftir vélrituðu letri og er ekki eins gott aflestrar og ótal mörg önnur. Ef ástæðan er sú að þig langar að hafa bókaletur (hakaletur) í lesmálinu, sem ég skil vel, þá eru aðrir fontar miklu betri. Flestir eru betri en þetta.

Margrét Sigurðardóttir, 6.6.2012 kl. 21:57

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Veistu, ég klippti þetta út úr e-m tölvupósti og svona kom þetta út!

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 6.6.2012 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband