Fóðrum ekki þjóðarrembu

Nú koma úrslitin ekki á óvart - og í raun var það kannski kjörsóknin sem var orðin eina spennandi talan - og mér dettur ekki í hug að túlka hana. Það sem má óttast er að þjóðremba aukist og við því varar sr. Bjarni Karlsson í bloggi sínu í gær: "Ég hefði ekki viljað þurfa að greiða atkvæði í dag undir þeim kringumstæðum sem nú ríkja, vegna þess að ég óttast að atkvæði mitt verði notað til þess að rökstyðja frekari þjóðarrembu og þybbing sem skaðar ímynd okkar og eyðileggur meira en nokkur Icesave-samningur." Sjá meira á http://hjonablogg.eyjan.is/2010/03/nei-me-srri-samvisku.html

 


mbl.is Kjörsókn 66% í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Als

Það er í mínum huga ekki stærsta áhyggjuefnið, hvernig ólíkir einstaklingar túlka þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, sér í hag. Ef einhverjir kjósa að berja sér á sitt íslenska brjóst, látum það gott vera, segi ég. Sumir þurfa eflaust á því að halda. Þeirra mál, ekki satt?

Eini rembingurinn, sem ég óttast - og er eflaust ekki einn um þessa dagana, er hvernig valdstjórnin ætlar að notfæra sér þessa afgerandi niðurstöðu. Forsætisráðherra hunsar atkvæðagreiðsluna, hún virðist úr tengslum við þorra þjóðarinnar og fjármálaráðherrann virðist fara undan í flæmingi, allt að því gramur yfir að hafa ekki komið felldum samningi í gegn.

Eru viðbrögð þessa fólks ekki það sem þjóðin þarf að hafa áhyggjur af, jafnvel óttast? Eiga þau tvö að vera sverð og skjöldur þjóðarinnar í átökum við erlendar ríkisstjórnir? Þau virðast rúin trausti, stjórnin situr á rústum mikilla væntinga og svikinna loforða- jafnvel hægri maðurinn ég hafði trú á að þau gætu gert betur. Nei, ég hef ekki miklar áhyggjur af eilítilli rembu eftir það sem á undan er gengið.

Ólafur Als, 7.3.2010 kl. 10:38

2 identicon

Enginn er með þjóðarrembing.

 Hitt er vægast sagt skelfilegt, að í gærkveldi, þegar ljóst var að 95% þjóðarinnar mundi segja himinhátt " NEI" - aðeins 1,4% " já" - ja, það sagði Steingrímur nokkur Sigfússon fjármálaráðherra  í sjónvarp og útvarp eftirfarandi  ( kl. 2210):

 " Mér þykir merkilegt hvað MARGIR SÖGÐU JÁ"  !!!!!!!!!!

 Á tungu feðranna heitir slíkt að vera haldinn  VERULEIKAFIRRINGU !

 Þessi ömurlega stjórn er búin - svo einfallt er málið !

Kalli Sveinss 7.3.2010 kl. 10:40

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Eftir að hafa komið í lögunum í gegnum þingið fyrir áramótin með mikilli andstöðu tók ríkisstjórnin einmitt tillit til þess að þau yrðu líklega felld í þjóðaratkvæðagreiðslunni, og fór út í að reyna að ná skárri samningum við Breta og Hollendinga.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.3.2010 kl. 10:42

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Já, það er merkilegt hvað margir sögðu þrátt fyrir allt "já". Ég tek ekki undir Steingrímur fjármálaráðherra sé veruleikafirrtur.

Ríkisstjórnin þarf að vinna verk á sviði velferðar, forgangsraða hinum óhjákvæmilega niðurskurði, byggja stefnu til framtíðar í menntamálum og umhverfismálum og ferðamálum, svo að eitthvað sé nefnt. Fjölmiðlarnir ekki síður en ríkisstjórnin hafa verið upptekin við Icesave - og mál er að linni. En það sakar ekki ef hægt er að gera skárri samninga sem ynnu upp eitthvað af tapinu við að láta málið dankast.

En eru ekki lögin með fyrirvörunum frá sl. sumri núna í gildi?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.3.2010 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband