Sendiboðar Bjarna Ben.?

Skyldu þetta hafa verið fulltrúar frá Sjálfstæðisflokknum? Sbr. hin fleygu orð nýkjörins formanns að loknu formannskjörinu um að honum liði eins og skyri, hann væri svo hrærður.
mbl.is Slettu skyri í kosningaskrifstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Guðbrandsson

Vil benda á það að þetta er í annað skipti sem við höfum lent í pörupiltum með sóðaskap og ósvífni og skrifstofunni þarna í Firðinum, um daginn var ungur piltur að strunsa þarna framhjá okkur og rétt meðan hann sveif framhjá gaf hann sér sekúndubrot til þess að hrækja á vegginn hjá okkur. Þokkalega flottur maður.

Geir Guðbrandsson, 20.4.2009 kl. 11:58

2 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Sjálfstæðismenn hafa hingað til ekki gengið um með grímur, þannig að mér dettur helst í hug að þarna hafi verið saman komnir meðlimir Ungra Vinstri Grænna, mörg þeirra vilja einmitt ekki sýna sitt rétta andlit, og er þessi hegðun í samræmi við fyrri aðgerðir...

Ingólfur Þór Guðmundsson, 20.4.2009 kl. 12:00

3 identicon

aha

zappa 20.4.2009 kl. 12:14

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Geir, nafni, Börkur og Zappa. Nafni: Sjálfstæðismenn geta hæglega sett eins grímur eins og hver annar, ættu kannski að ganga með hauspoka eftir bankahrunið - en það er önnur saga: Skyr hefur sérstaka merkingu í mótmælasögu Íslands vegna aðgerða Helga Hóseassonar. Og nafni: Skensið er um Bjarna Benediktsson - auðvitað dettur mér ekki í hug að hann hafi sent nokkurn mann til að sletta skyri. Hann auglýsir kannski trausta efnahagsstjórn eins og fyrirrennari hans gerði fyrir síðustu kosningar. Og allir vita hvernig fór.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 20.4.2009 kl. 12:20

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

er þetta ekki bara borgaraaleg óhlíðni af svipuðum toga og var í búsáhaldarbyltingunni? nema hvað að það vantar saur og þvag sem þar var kastað af grímuklæddu fólki.

Fannar frá Rifi, 20.4.2009 kl. 12:31

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

skyrið er komið inn á skrifstofur hjá XD þannig að ekki voru þetta Sjálfstæðismenn.

Fannar frá Rifi, 20.4.2009 kl. 13:52

7 identicon

Þeir einu sem hata Samfylkinguna nóg til að gera svona lagað eru Sjálfstæðismenn. Hvítliðar Sjálfstæðismanna eru farnir að sletta skít út um allt, láta sér greinilega ekki nægja að gera þetta í auglýsingum sínum.

Ef þetta hefðu verið umhverfisverndarsamtök þá hefðu þau gert þetta undir nafni, enda ekki eins miklir heiglar og Sjálfstæðismenn.

Valsól 20.4.2009 kl. 14:34

8 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir athugasemdir og umræður, Börkur og Fannar - en hvað ætlar þú að gera við skyrið, Fannar?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 20.4.2009 kl. 15:10

9 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Líka kveðjur til þín, Valsól

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 20.4.2009 kl. 15:11

10 Smámynd: Fannar frá Rifi

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/04/20/skyri_og_malningu_slett_a_kosningaskrifstofu_vid_ar/

eru þetta ekki bara þeir sömu hafa verið með læti í allan vetur? 

Fannar frá Rifi, 20.4.2009 kl. 15:29

11 identicon

Sjálfstæðismenn eru upp til hópa svo samansaumaðir nískupúkar að þeir tíma ekki að henda skyrdollum fyrr en þær eru tómar.

Stefán 20.4.2009 kl. 15:59

12 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hvar stendur Ingólfur í pólitík?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 20.4.2009 kl. 16:54

13 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ef það er pólítík á bak við skyr- og jógúrtslettingar á skrifstofum Samfylkingarinnar og SjálfstæðisFLokksins, þá er líklegast að það sé einhvers konar anarkismi. Svo er sá möguleiki til að þarna sé um hreina skemmdarfýsn að ræða. Það hins vegar hindrar mig ekki í að gera grín að ummælum formanns Sjálfstæðisflokksins um skyrið.

Fannar, Stefán og Gísli: Takk fyrir innlitið. Og Gísli: Ég er vinstri grænn og heimsæki ekki kosningaskrifstofur annarra flokka til að sletta skyri. Fólk á ekkert að haga sér þannig og kannski átti ég ekki að glensa með hvort þetta væru útsendarar Bjarna. Enda held ég engum detti í hug ég haldi það.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 20.4.2009 kl. 17:28

14 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Takk fyrir svarið Ingólfur

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 20.4.2009 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband