Sorgleg frétt um álver

Vonandi verður ný ríkisstjórn kröftugri og kemur í veg fyrir meiri álveravæðingu landsins. Vonandi er enn möguleiki á að stöðva þetta álver og þá ekki síður þær virkjanir sem þarf til að það fái raforku.
mbl.is Lög um Helguvíkurálver samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Verður það ekki bagalegt að fá um inn 300 milljarða í þjóðarbúið og kannski verst að fólk fái vinnu.

Skil vel að VG vill koma í veg fyrir það.

Rauða Ljónið, 17.4.2009 kl. 21:56

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ágæta rauða ljón: VG hafa ekki á móti því að fólk hafi atvinnu - en það er ekki sama hver atvinnan er. Í kvöld voru kaup á vændi gerð refsiverð og þar með eflaust komið í veg fyrir að auðvelt sé að stunda vændi sem "atvinnu", enda um að ræða ofbeldi. Stórvirkjanastefnan er kannski ekki endilega alveg sambærileg, en reyndar hefur oft verið notuð samlíkingin um að annars vegar sé líkama og sál kvenna nauðgað og að landinu sé nauðgað.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 17.4.2009 kl. 22:07

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það ætti að skylda alla álverssinna til að tala við almenning á Austfjörðum og horfa síðan á myndina Draumalandið! Spurning hvort ég krefji þá, sem eyða öllum sínum kröftum og vitsmunum í að vinna leynt og ljóst gegn þjóðarhagsmununum, um skaðabætur fyrir það tjón sem þeir hafa unnið sálarheill minni með „afekum“ sínum inni á Alþingi í dag

Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.4.2009 kl. 22:16

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll Ingólfur ef þú lest atvinnusöguna þá byrjaði stóriðja norður á Siglufirði rétt um aldar mótin 1900 með söltum og bræðslu á síld kvenfólk sem sótti þar vinnu til að komast úr bændaránauð  og átthagafjötrum og leita frelsins með vinnu þar þær voru kallaða hórur og mellur eins og sjá má á ritum frá þeim tímum minni líka á að Áar VG gerðu það í þingsölum.

Síðustu 30 árin hafa VG hrópað eitthvað annað  eitthvað annað sem aldrei kemur það er bara staðreynd.

Rauða Ljónið, 17.4.2009 kl. 22:23

5 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ágæta rauða ljón, ég hef ýmislegt lesið í atvinnusögunni og gott að rifja hana upp í þessu samhengi, en hvað varðar stjórnmálasöguna er dulítið hæpið að ákveða hvað séu áar VG. Og tek fram að Vinstri hreyfingin, grænt framboð var stofnuð fyrir tíu árum, nánar tiltekið í febrúar 1999, en ekki fyrir 30 árum.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 17.4.2009 kl. 22:27

6 Smámynd: Rauða Ljónið

En hvað hét  áður Alþýðubandalagið frá 1968 til 1999 Sósalistaflokkur Íslands. Kommúnistaflokkur Íslanda til 1938.

Síðan VG tók til starfa hafa þeir einga samleið átt alþýðu Íslanda einungis flokkur mennta og listmann upprunin löngu gleymdur og kastað á glæ.

Hinsvega voru áarnir lika bædur og vissir íhaldsmenn.

Rauða Ljónið, 17.4.2009 kl. 22:53

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Vinstri græn er nútímaflokkur, stjórnmálaflokkur 21. aldarinnar, ekki flokkur frá því á fyrri hluta 20. aldar. Kommúnistaflokkur Íslands var merkur flokkur og hann rann inn í Sósíalistaflokkinn, sameiningarflokk alþýðu, sem loks rann inn í Alþýðubandalagið sem loks rann inn í Samfylkinguna.

Vinstri græn voru stofnuð af einstaklingum, hvorki flokkum né hópum. Sumir höfðu verið í Allaballa, það er rétt, en aðrir í kvennalistunum og enn aðrir utan flokka. En svo er það nú þannig að margir flokksfélagar voru börn og unglingar þegar flokkurinn var stofnaður. Þetta er bara kjánalegt að rekja alltaf einhverja langa sögu flokka og flokksbrota þegar fólk kemur saman og stofnar nýjan flokk. Meira að segja held ég að það eigi ekki leggja neitt of mikið út af því þótt Samfylkingin sé framhald af nokkrum flokkum að hann sé 20. aldar flokkur. Samfylkingin reynir að vera nútímalegur krataflokkur. En kratismi dugar mér ekki - allra síst þegar flokkurinn getur ekki tekið einarða afstöðu með náttúruvernd.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 17.4.2009 kl. 22:59

8 identicon

Er söltun og bræðsla síldar á siglufirði um þar síðustu aldamót sambærileg við innrás og arðrán alþjóðlegra risafyrirtækja á íslandi?

Torfi Magnússon 17.4.2009 kl. 23:30

9 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Torfi hún byrjaði á svipaðan hátt.

Sæll. Ingólfur þakka samtektina.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 18.4.2009 kl. 00:12

10 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Rakel - eg var svo upptekinn að rökræða við Sigurjón rauða ljón að ég gleymdi að þakka þér innlitið í gærkvöldi, en geri það hér með. Sömuleiðis líka þakka ykkur innlit síðar í gærkvöldi, Torfi og Sigurjón rauða ljón.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 18.4.2009 kl. 06:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband