Einkavinavæðingin og Sjálfstæðisflokkurinn

Fremur spaugilegt er nú að frétta af stund játninganna í Sjálfstæðisflokknum þar sem nú hver um annan þveran biður afsökunar. Einkavinavæðingarstefna Sjálfstæðisflokksins var ekki óvitaháttur eins og halda mætti af ummælum Vilhjálms og Geirs Haarde heldur þrauthugsuð pólítísk stefna sem miðaði að því að skapa skilyrði fyrir þá ríku til að verða ríkari. Vel getur verið að einhverjir flokksfélagar hafi trúað því að það væri ekki á kostnað annarra sem svo færi, að það væri til óendanlegur hagvöxtur. Við fyrirgefum gjarna óvitum ýmislegt og metum stundum af hverju mistök eða glæpir voru framdir, hvort þar var á ferðinni klaufaskapur. Ef stefna Sjálfstæðisflokksins væri klaufaskapur en ekki þrautpæld stjórnmálastefna væri ef til vill hægt að taka afsakanirnar gildar.


mbl.is Mistökin Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ungliðahreyfingar flokkanna hafa þann leiða sið, að nota frasa stolna frá flokksforystunni, en innihaldinu gleyma þeir, enda hafa oftast ekkert vit á. Hægrimenn kalla VG liðið kommúnista, sem varla er réttnefni, þó margt þeirra trúi á einhæfan ríkisrekstur. Nýlega horfði ég á ágætt viðtal við Steingrím Sigfúsan bera ríkisafskiptastefnu VG til baka, og hann sagðist vilja blandað hagkerfi. Þegar kerfi kommúnista virkaði ekki í Sovétríkjunum þá var liðinu bara útrýmt. Talið er að margfalt fleiri hafi verið drepnir þarna suðurfrá en Hitler myrti í seinni heimstyrjöldinni.  Þetta eru nú svona upplýsingar fyrir ungliðann Ingólf Ásgeir Jóhannesson, sem ætti að skipta um mynd í blogginu miðað við aldur og þroskastig.

Sigurður Þorsteinsson, 27.3.2009 kl. 16:49

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Já, Sigurður, ertu að vitna í að Steingrímur hafi rætt útrýmingar? Það held ég varla - en annars er hann færastur að svara fyrir sig. Leiðrétti þá villu þína að ég sé í eða tali fyrir ungliðahreyfingu VG og þér kemur heldur ekki við hvaða myndir ég hef á minni bloggsíðu.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 27.3.2009 kl. 17:57

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Nýlega kom vinur minn af nýafstöðnu þingi VG. Hundleiðinlegt. Annars vegar krakkar og hins vegar afgamalt trúarlið sem étur upp frasa eftir flokksforystunni. Ég hef ennþá trú á að Ingólfur Ásgeir sér óþroskaður unglingur, þroskaðir einstaklingar taka upp þroskaðri málflutning.

Sigurður Þorsteinsson, 27.3.2009 kl. 18:15

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Athugasemdir þínar, Sigurður, benda nú ekki til þess að þú sért góður dómari um hvað sé "þroskaður" málflutningur. Mér sýnist viðhorf þitt til "krakka" og "ungliða" ekki vera mjög "þroskað"  eða þú vitir mjög mikið um "át" eftir flokksforystunni í VG.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 27.3.2009 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband