Af hverju er Grafarholti skipt en ekki Vesturbænum?

Hvað veldur vali hverfis til að skipta í sundur? Myndi það rugla fólk í Vesturbænum, eða öðrum hverfum vestan Elliðaáa, meira að vera skipt? Af hverju er skipt í norður-suður, en ekki austur-vestur og mörkin færð austar eftir því sem fjölgar í úthverfunum? Er það vegna þess að þingmennirnir búa í vesturhlutanum og óttist að íbúar úthverfanna muni gera tilkall til þingsæta verði þau að sérstöku kjördæmi? Ég bjó um fjögurra ára skeið austan Elliðaáa og hefði ekki líkað að vera færður milli kjördæma á þennan máta. Og af hverju er ekki óhætt að hafa Reykjavík sem eitt kjördæmi?


mbl.is Grafarholt skiptist áfram milli kjördæma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hin fáránlega skipting Reykjavíkur í tvö kjördæmi var keyrð í gegn af þingmönnum landsbyggðarinnar á sínum tíma.

Hún er á skjön við röksemdirnar fyrir kjördæmaskiptingu yfirleitt, sem felast í mismun á hagsmunum eftir svæðum.

Það er enginn munur á hagsmunum kjósenda sunnan við Hringbrautina og kjósenda norðan brautarinnar.

Eina línan sem getur skipt Reykjavík eftir hagsmunum liggur um Elliðaár og Fossvogsdal.

Ómar Ragnarsson, 12.3.2009 kl. 17:16

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Vesturbænum er skipt, byggðin norðan Hringbrautar er í Reykjavík norður og byggðin sunnan Hringbrautar er í Reykjavík suður.

Og Seltjarnarnesið er í Suðvesturkjördæmi.

Það væri nú vit í því að hafa Akureyri í þremur kjördæmum, þar sem vægi atkvæða væri mismikið.

Þorsteinn Briem, 12.3.2009 kl. 20:09

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið og athugasemdirnar, Ómar og Steini. Það er hárrétt hjá þér, Steini, að Vesturbænum er skipt, en á fremur eðlilegan máta eftir Hringbrautinni. Og ég held að ef sú skipting yrði nú færð upp á Sólvallagötu eða Holtsgötu þætti það fremur undarlegt. Myndirðu skipta Akureyri í Þorpið, Oddeyri, Innbæinn og Brekkuna, eða áttu við norðan og sunnan ár og svo Hrísey sem þriðja hverfið. Ég mun samþykkja sameiningu Grímseyjar og Akureyrar sem mér skilst að standi til.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 12.3.2009 kl. 21:47

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kjördæmaskipting við Sólvallagötu væri jafn undarleg og kjördæmaskipting við Hringbraut.

Einnig jafn undarleg og kjördæmaskipting á milli bæjarhluta á Akureyri, til dæmis Brekkunnar og Innbæjarins, Oddeyrarinnar og Glerárhverfis.

Sveitarfélög geta sameinast ef þau vilja, til dæmis Akureyri og Grímsey, rétt eins og Akureyri og Hrísey hafa sameinast.

Mjög fáir búa í Hrísey og Grímsey og því er hagkvæmt fyrir þessi byggðarlög að sameinast Akureyri en meirihluti Hríseyinga vildi ekki búa í Dalvíkurbyggð.

Og hagkvæmt væri fyrir sveitarfélögin frá Mosfellsbæ að Álftanesi að sameinast en íbúar þessara sveitarfélaga hafa ekki viljað sameina þau.

Hagsmunir þeirra allra eru hins vegar þeir sömu í alþingiskosningum og þau gætu þess vegna verið í sama kjördæminu. Hagsmunir íbúa í Suðvesturkjördæmi eru þeir sömu og íbúa Reykjavíkur, bæði norður og suður, og ekki þurfa að vera jafn margir þingmenn í öllum kjördæmum landsins.

Ég bý á mótum þessara þriggja kjördæma og ég tek ekkert sérstaklega eftir því þegar ég fer frá Seltjarnarnesi yfir í Reykjavík eða frá Kópavogi yfir í Reykjavík.

En öll þessi byggðarlög eru mun stærri en Hrísey og Grímsey og því hagkvæmari rekstrareiningar, enda verða mörg lítil sveitarfélög sameinuð öðrum á næstunni.

Þorsteinn Briem, 12.3.2009 kl. 22:43

5 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Sæll Ingólfur

Sammála. Þetta er rökleysa, skiptingin og ég man t.d aldrei hvort ég er í Suður eða Norður, því samkvæmt áttunum bý ég í Austurbænum.

Verð annars að segja þér í framhjáhlaupi að ég keypti bókina þína um karlmennsku og jafnréttisuppeldi, ég er orðin svo leið á því að strákurinn minn taki aldrei til hendinni hér heima. Ég vona að þú lumir á einhverjum góðum ráðum hvað það varðar. 

Anna Karlsdóttir, 13.3.2009 kl. 09:59

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa einnig fleiri sameiginleg hagsmunamál en ósameiginleg.

Veturinn 1954-55 ákvað hreppsstjórn Kópavogshrepps að sækja um til Reykjavíkurbæjar að Kópavogur sameinaðist Reykjavík. Þessu var alfarið hafnað af bæjarstjórn Reykjavíkur, enda væru flestir hættulegir kommúnistar í Kópavogi. Sjálfstæðismenn knúðu Kópavogsbúa til að stofna nýtt sveitarfélag með tilheyrandi kostnaði. Byggja þurfti upp samfélagslega þjónustu alveg frá grunni.

Sennilega hefðu fleiri sveitarfélög, Garðahreppur, Álftaneshreppur og að öllum líkindum Hafnarfjörður sameinast Reykjavík hefði Kópavogur verið sameinaður Reykjavík á þessum tímamótum.

Nú eru á höfuðborgarsvæðinu 3 kjördæmi. Ekki eru margir hagsmunir sem ekki eru sameiginlegir öllum.

Þessi kjördæmaskipting er beinlínis til að gefa fólki langt nef enda höfum við ekkert að segja. Þannig átti Sundabrautin að vera tilbúin 2006 þegar fyrstu hugmyndir komu fram um þær samgöngubætur. Enn er ekki byrjað á neinum framkvæmdum en sitthvað er tilbúið, t.d. hefur verið framkvæmt umhverfismat að mestu.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 13.3.2009 kl. 10:13

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Steini, Anna og Mosi - takk fyrir innlit og umræður.

Anna: Vona að þú hafir gaman af bókinni

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 13.3.2009 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband