Frábær sýning í Listasafninu á Akureyri

Óhætt er að segja að sýning Margrétar Jónsdóttur í Listasafninu á Akureyri, Hvítir skuggar, hafi komið mér á óvart. Ekki að það hefði átt að koma mér á óvart að hrífast af verkum Margrétar eins þekkt og Margrét er af margvíslegum verkum sínum á Akureyri. Það sem kemur á óvart er að sjá bæði gamalkunnuga muni og ótrúlega falleg listaverk öll saman í þeirri umgjörð sem hefur verið sköpuð og hvernig kertastjakar og bollar verða eiginlega að alveg nýjum hlutum þegar þeim er raðað upp eins og þarna er gert. Það hefur líka verið fróðlegt að heyra viðtöl við Margréti um listina bæði á RÚV í kvöld og Aksjón í síðustu viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Glæsileg sýning Margrétar! Tek undir þetta hjá þér Ingólfur og hvet alla til að fara í Listasafnið á Akureyri og njóta. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 29.1.2009 kl. 11:59

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið og kveðjuna, Hlynur

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 29.1.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband