Losunarheimildir til nýs álvers í skugga Glitnismáls

Þið verðið að fyrirgefa mér, lesendur góðir, en mér líður eins og það sé myrkraverk að úthluta losunarheimildum til álvers, sem varla er byrjað að byggja, nú þegar þjóðfélagið er á öðrum endanum eftir yfirtöku ríkisins á Glitni, gengishrap íslensku krónunnar og áhyggjur almennings af efnahagsástandinu. Einmitt!
mbl.is Þrjú fyrirtæki fá losunarheimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Í hverju er myrkraverkið fólgið?  Að ganga gegn vilja fólksins á Suðurnesjum í atvinnuuppbygginu?   Að leggja sitt af mörkum til að auka landsframleiðslu og draga þannig úr falli krónunnar?   Það að hrukka ennið og hafa áhyggjur leysir ekki vandann, það þarf að framkvæma til að vandinn leysist. 

G. Valdimar Valdemarsson, 30.9.2008 kl. 21:42

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Í dag gefur áliðnaður um 80 milljarða í þjóðarbúið og skapar um 22000 manns atvinnu beint og óbeint í ál og orkugeiranum og hvert framleidd tonn af áli sparar hnattrænalosun 13 .5 tonn af CO2.

En eru til menn sem vinna gegn losun á CO2 hnattrænt og vilja auka hana og vinna gegn að næg atvinna sé handa hinum vinnandi manni, vitna síðan í Glitni hér er eitthvað að.

Kv.Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 30.9.2008 kl. 21:57

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er Guðjón Arnar Kristjánsson eini stjórnmálamaðurinn sem kemur auga á 100 milljarða verðmætaaukningu í sjávarafla?

Árni Gunnarsson, 30.9.2008 kl. 23:07

4 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Þakka ykkur innlitið, Valdemar, Sigurjón og Árni. Myrkraverk? Skyldi ekki verða minni umræða umræða um málið vegna annarra frétta? (Reyndar tók ég eftir þessu, þannig kannski hef ég rangt fyrir mér um þetta.) Fjöldi fólks á Suðurnesjum sem annars staðar á landinu vill ekki fleiri álver og tilheyrandi náttúruspjöll, sem eru auðvitað aðalmálið. Kárahnjúkahneykslið er að vísu svo stórt að erfitt er að toppa það. Og Sigurjón: Eina raunhæfa leiðin við að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, tengd áli, er sú að draga úr framleiðslu áls eða endurvinna meira af því. Svo er orðin svo mikil álframleiðsla á landinu að veldur einhæfni í atvinnulífi og útflutningi, nokkuð sem var helsti vandi þjóðfélagsins meðan meiri fiskur var fluttur út. Því er full ástæða til að vera á varðbergi!

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 1.10.2008 kl. 06:56

5 Smámynd: Sigríður Hulda Richardsdóttir

Ég held að fólk ætti að hugsa um annað en álver núna, á þessum myrku tímum í efnahagslífinu.

Sigríður Hulda Richardsdóttir, 1.10.2008 kl. 11:20

6 identicon

G. Valdimar. Trúir þú því sjálfur að það dragi úr falli krónunnar að auka erlendar skuldir og þar af leiðandi greiðslubyrði um milljarða á ári í því skyni að skapa fleiri störf, á sama tíma og verið er að flytja inn útlendinga í stórum stíl vegna skorts á vinnuafli??? Fleira fólk þíðir aukinn kostnað við rekstur samfélagsins. Margir spáðu niðursveiflu þegar lánsféð kláraðist og greiðslubyrðin af Kárahnjúkaskuldunum kæmu á landsvirkjun.

Rauða Ljónið. Það er marg búið að reka þetta bull um 80 milljarðana ofan í ykkur. Þetta eru tekjur hinna útlendu álfyrirtækja af álverunum hér og þau gefa okkur ekki allt saman. Annað hvort fylgist þú illa með eða þú ætlast til að aðrir séu svo einfaldir. Þetta tal um að hvert tonn af áli spari 13,5 tonn af co2!!!! Ert þú þá að meina léttu álfarartækin sem brenna minna eldsneyti? Nefndu svo mikið sem eitt dæmi um að farartæki hafi orðið léttara við það að auka álframleiðslu á Íslandi. Þessu var lofað þegar verið var að byggja álverið í Hvalfirði en síðan þá hefur meðalþyngd bifreiða aukist. Hvernig bíl eigið þið? Ert þú kannski að tala um að afstýra kolabrennslu? Fossar og jarhiti eru ekki sér-íslensk fyrirbæri, slíkt finnst út um allan heim. Hvaða upplýsingar hafið þið um að álver á Íslandi dragi úr kolabrennslu í fjarlægum heimshlutum? Komið með stafestingu á slíku því þessar fullyrðingar eru orðnar þreytandi. Væri ekki nær að sniðganga vörur sem framleiddar eru í þeim löndum sem ekki vilja draga úr mengun? Það geri ég og ég á ekki bíl.

Húnbogi Valsson 1.10.2008 kl. 22:40

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Húnbogi góður að vanda, tek undir hvert hans orð!

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.10.2008 kl. 01:22

8 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Kærar þakkir fyrir innlitið, Húnbogi og Lára Hanna, og fyrir góðan pistil, Húnbogi

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2.10.2008 kl. 07:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband