Hver skyldi vera oddviti í Kjós?

24 stundir sögðu frá því í morgun (á bls. 13) að í 26. gr. sveitarstjórnarlaga væri ákvæði þess efnis að verði sveitarstjórn óstarfhæf ... geti ráðuneyti ... falið sveitarstjórn nágrannasveitarfélags að fara með stjórn sveitarfélagsins uns sveitarstjórnin verður starfhæf á ný. Þó nokkur sveitarfélög eiga landamerki á landi að Reykjavík; að norðan er það Kjósarhreppur. Og því er spurt hver sé oddvitinn í Kjós? Því væntanlega hefur hann eilítið minna á sinni könnu en bæjarstjóri Kópavogs. Vitanlega koma þarna líka til greina Seltjarnarnes og Mosfellsbær.

Ef farið er yfir sjó eru nokkur sveitarfélög: Akranes, Hvalfjarðarsveit, Álftanes, Vogar, Reykjanesbær, Garður, Snæfellsbær ... Þá væri vitaskuld nærtækt að leita til Árna Sigfússonar í Reykjanesbæ; hann var borgarstjóri í Reykjavík í nokkra tugi daga vorið 1994 eftir að íhaldið skipti um hest í miðri kosningabaráttu, og þekkir því vel til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Trausti Magnússon

Þetta er mjög góður punktur. Ég þekki aðeins til í Kjósinni, þar býr gott fólk. Leifum þeim að spreyta sig, það kemst þá kannski smá ró á málin.

J. Trausti Magnússon, 23.1.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hahaha, ekki afleitar vangaveltur

Brjánn Guðjónsson, 23.1.2008 kl. 21:46

3 identicon

Til upprifjunar:

Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07

Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv

Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:

http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016

Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð

Ólafs F,Magnússonar:

http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/

kv. gb

Gísli Baldvinsson 24.1.2008 kl. 17:07

4 identicon

Fyrrgefðu Ingólfur en kerfið vildi ekki slóðirnar:

Til upprifjunar:

Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07
Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv


Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:
http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016


Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð

Ólafs F,Magnússonar:

http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/


kv. gb

Gísli Baldvinsson 24.1.2008 kl. 17:59

5 Smámynd: Soffía Sigurðardóttir

Sigurbjörn Hjaltson á Kiðafelli er oddviti í Kjós. Meirihluti íbúa þar felldi sameiningu við Reykjavík fyrir að mig minnir um tveimur árum síðan. En það má alveg leita til þeirra aftur!

Soffía Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 18:12

6 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Þakka ykkur fyrir innlitið, Trausti, Brjánn, Arnþór, Gísli og Soffía. Mér líst mjög vel á að Sigurbjörn taki við borgarstjórninni í Reykjavík. En dæmalaus er atburðarásin. Ég er nú að hlusta á tvö viðtöl við Ólaf F. núna: þetta sem þú vísaðir mér á, Gísli, og annað á "rauntíma" á Stöð 2. Nú hefur hann valdið.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 24.1.2008 kl. 19:07

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Í viðtalinu í byrjun des. segist Ólafur F. ekki muni misbeita valdi sínu ... hmm ...

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 24.1.2008 kl. 19:14

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mér líst mun betur á að oddviti kjósahrepps taki við en þessi afdankaði læknir.

Brjánn Guðjónsson, 24.1.2008 kl. 20:41

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

var ekki einu sinni búinn að spá í hvort hann væri framsóknarmaður, sem er auðvitað fatalt

Brjánn Guðjónsson, 24.1.2008 kl. 20:42

10 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Hvet til þess að leitað verði til Kristjáns Möller í málinu - núþegar og hann spurður.   Ef Kjósarhreppur á að fást til að yfirtaka vandamálið er mikil hætta á að ráðherran þurfi að fjármagna Sundabrautina strax í dag - þannig að þetta gæti orðið kostnaðarsöm yfirtaka sveitarstjórnar í Reykjavík

Benedikt Sigurðarson, 24.1.2008 kl. 20:56

11 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Gæti allt eins trúað því, Brjánn, að Sigurbjörn væri vinstri grænn en ég vissi nú ekkert um hver væri oddvitinn þegar ég stakk upp á þessu; ég hafði ekki vit á því að fletta því upp eins og Soffía.

Áttu þá við, Bensi, að gera göng úr Kjós niður að Ráðhúsi?

Já, Ólafur er annar læknirinn á skömmum tíma sem stýrir Reykjavík. Um langt árabil voru það sagnfræðingar, að vísu skaust inn Þórólfur inn á milli þeirra Ingibjargar Sólrúnar og Steinunnar Valdísar. Voru ekki flestir sjálfstæðismennirnir, sem stýrðu Rvík, lögfræðingar?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.1.2008 kl. 08:07

12 identicon

Hafnfirsk stjórnmál einkennast af stöðugleika - eitthvað sem Reykvíkingar þrá og þurfa. Ég veit að Lúlla munar lítið um að bæta ábyrgð á velferð Reykvíkinga við sig.

Guðmundur Rúnar 25.1.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband