Framsóknarfötin: Hvernig tókst til?

Undrandi hef ég fylgst með umræðum um hver keypti kosningabaráttufötin á aðskiljanlega framsóknarmenn og hver er með hnífa í bakinu á hverjum. Ég hef líka reynt að veita því nokkra athygli hvernig til hafi tekist í fatakaupunum. Björn Ingi er með trefil á þessari mynd, skyldi það vera framsóknartrefill? Og var ekki Guðjón Ólafur venjulega með fallega slaufu? Hann var bæði bindis- og slaufulaus í Silfrinu hjá Agli í gær. Og hér er Halldór fyrrverandi framsóknarformaður, hver skyldi hafa fatað hann? Og ekki má gleyma Guðna sem er á myndinni sem er tengd þessari færslu.


mbl.is Flokksforustan stendur að baki Birni Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Þorsteinsson

Var það ekki Spilverk þjóðanna sem söng svo eftirminnanlega: 

Fötin skapa manninn eða viltu vera púkó? Nei ekki ég...

Kannski þar sé komið nýr flokkssöngur fyrir Framsókn, hver veit?

Jóhann Þorsteinsson, 21.1.2008 kl. 17:57

2 identicon

Óheillakráka í Gefjunarfötum !!!

Axel Guðmundsson 21.1.2008 kl. 18:33

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Já, og ný sannindi um frammara komin í ljós!! Engar naríur, takk fyrir.  Bara allt, allt annað.

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 21.1.2008 kl. 21:35

4 identicon

Sæll vertu.

Get ekki að því gert að mér finnst umræðan um nýju fötin Framsóknar nokkuð sérstök. Eftir að hafa komið að stjórn kosningabaráttu er mér alveg ljóst að þar eru teknar ákvarðanir sem hafa í för með sér kostnað. Tilgangurinn er að vekja athygli á framboðinu og það er engin ein leið rétt eða röng í því máli. Sumir gefa út þykkan bækling og kaupa dreifingu í ótal hús. Þetta kostar mikla vinnu og stórfé og flestir henda afurðinni lítið lesinni í ruslið. Aðrir kaupa heilsíðu auglýsingar í blöð og borga hundruð þúsunda svo lesendur blaðanna geti flett hratt yfir einhverjar síður í blaðinu. Það má kaupa margar flíkur fyrir það fé sem kastað er í auglýsingar til lítils gagns fyrir málstaðinn. Því miður er það svo að ótrúlega margir kjósendur rétt kíkja á myndir og fyrirsagnir en hirða ekki um að lesa texta, stefnumið og útlistanir á góðum framtíðaráformum. Þá er það spurning sem ýmsir hafa staldrað við hvort myndin sem búin er til af frambjóðendum þurfi þá bara ekki að vera grípandi og glæsileg fyrst hún er það eina sem menn skoða. Og þá eru keypt föt. Þetta eru s.s. allt aðferðir til að ná sama marki. Stóra atriðið í þessu er, að ákvörðun um það hvaða leið er valin sé tekin af því fólki sem er til þess bært og á að hafa völd til að taka slíka ákvörðun. Enn hef ég ekki heyrt neinn halda því fram að svo hafi ekki verið í þessu dæmi. Ég get eytt löngu máli og tíma í að gagnrýna Framsókn, af nógu er að taka þar, en þetta er ekki eitt af því og verður tæpast fyrr en ég fæ að vita að þetta hafi farið aftan við bak þeirra sem áttu að stjórna baráttu Framsókar. Og ekki jókst útgeislun þingmannsins fyrrverandi við að fara í geðvonskuhaminn. Og var hann búinn að gleyma því þegar þeir BIngi voru að máta saman föt í baráttunni fyrir nokkrum árum, eins og fram kom í Kastljósinu í kvöld. Það er því spurning hver skaðast mest á málinu.

Friðrik Dagur Arnarson 21.1.2008 kl. 21:39

5 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Takk fyrir innlitið, Jóhann, Axel, Þórhildur og Friðrik Dagur. Ég vissi ekki um að Guðjón Ólafur og Björn Ingi hefðu mátað saman föt; enn verður málið fáránlegra við það.

Ég heyrði í stjórnmálafræðingi í hádegisútvarpinu, held það hafi verið Gunnar Helgi; hann var þér sammála um að það væri hvorki ólöglegt né heldur siðlaust að fá föt í kosningabaráttuna. Hann eða einhver annar benti á að vísast væru fötin skattskyld. Það er nú það.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.1.2008 kl. 21:57

6 Smámynd: svarta

Ég hefði kannski ekki hætt í framsókn hefði ég fengið milljón í fatastyrk. Ef ég sæki um vinnu hjá ykkur, er þá fatastyrkur? Ekki einu sinni jólkort hjá KHÍ og við sláumst um skrifborðin í HÍ :)

Annars var ég að velta því fyrir mér hvort ég gæti ekki keypt prjónavettlinga af móður þinni? 

svarta, 21.1.2008 kl. 22:50

7 identicon

Það verður aldrei hægt að klæða skítlega eðlið af Birni spillta Inga.

Stefán 22.1.2008 kl. 10:29

8 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Jahá, Svarta, en hefðir þú viljað framsóknarföt ... Hmmm, veit ekkert um eðli Björns Inga, Stefán

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 23.1.2008 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband