Stundvísi og óreiða

Athyglisvert um stundvísina og verðmæti tímans, sérstaklega tíma annarra. Kólumbíski rithöfundurinn Gabriel García Márguez gerir grín að þessu í bók sinni Minningar um döpru hórurnar mínar: "Ég uppgötvaði ... að ég er einungis stundvís til þess að ekki komist upp hve tími annarra skiptir mig litlu". Þetta er að sjálfsögðu sögupersóna hans, háaldraður dálkahöfundur við dagblað, sem hugsar þetta. Sama persóna hafði uppgötvað að þráhyggja sín um að láta hvern hlut vera á sínum stað væri til að dylja eðlislæga óreiðu Blush
mbl.is Dýrt spaug að mæta of seint á blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Hefurðu lesið Mómó eða: Skrítin saga um tímaþjófana og barnið sem frelsaði tímann úr klóm þeirra og færði hann mannfólkinu á ný. Eftir Michael Ende? Legg til að þú kíkir á hana í barnadeildinni á Amtinu ef þú átt hana ekki, hún er alveg þess virði út frá hugmyndum um tímann en líka svo miklu fleiru. Las hana með strákunum mínum á sínum tíma, síðan hefur hún verið greipt í mig.

Kristín Dýrfjörð, 13.6.2007 kl. 00:03

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Blendnar tilfinningar gagnvart stundvísi, hæfileiki sem hægt er að nýta, en jafnframt mjög hamlandi og rífur mig alla vega oft úr miklu mikilvægari verkum og eflaust ýmsa aðra, sem þaulskipuleggja ekki daginn sinn. Í kennslu er það ómetanlegur kostur og eins þegar margir þurfa að gera það sama á sama tíma, en að öðru leyti finnst mér stundvísi ofmetin. Er þó alltaf ,,svag" fyrir einni tegund stundvísi og hún er sú að fólk sé ekki að mæta of snemma. Það er LÍKA óstundvísi að mæta of snemma, til dæmis í barnaafmæli ... 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 13.6.2007 kl. 01:01

3 Smámynd: Karl Tómasson

Sæll kæri Ingólfur.

Góður pistill hjá þér.

Ég fattaði það allt of seint að stundvísi annara er ekki síður minn tími. Svo er það líka hinn gullni meðalvegur eins og Anna kemur inn á að mæta ekki of snemma.

Já hann er erfiður þessi gullni meðalvegur.

Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 15.6.2007 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband