Uppeldi og menntun - 1. hefti 2011

Út er komiđ vorhefti tímaritsins Uppeldis og menntunar međ fjölbreyttu efni. Fyrsti hluti ţess er viđtal viđ Jón Torfa Jónasson sem tók viđ starfi forseta Menntavísindasviđs ţegar Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinuđust. Í viđtalinu lýsir Jón Torfi sjónarmiđum sínum til menntunar og spyr gagnrýninna spurninga um helstu viđfangsefni nútímans og úrlausnarefni framtíđarinnar. Sjá efnisyfirlit.

Í heftinu eru fjórar ritrýndar greinar og fimm ritdómar um sex rit úr flokkum námsefnis og rannsókna. Ritrýndu greinarnar spanna ólík viđfangsefni á sviđi menntunarfrćđa og fjalla um orđaforđa, leikskólastefnur, námskrá hönnunar og smíđi og loks námsmat í grunnskólum. Ţrír dómanna eru um nýjar bćkur og námsefni á sviđi kynjajafnréttis ćtlađar ţremur ólíkum skólastigum, einn dómur er um tvćr bćkur um tónlistarkennslu og einn er um bók sem lýsir rannsókn um ađstćđur nemenda međ ţroskahömlun.

Tímaritiđ uppfyllir núna 17 skilyrđi af 18 sem tímarit eru metin eftir í stigakerfi frćđimanna í háskólunum og telst ţannig standa jafnfćtis mörgum erlendum tímaritum ađ gćđum og höfundur fćr 15 stig í launakerfi háskólafólks fyrir birtingu greinar í tímaritinu. Leiđbeiningar fyrir greinarhöfunda eru á netinu, bćđi á íslensku og ensku.

Hćgt er ađ panta áskrift og einstök tölublöđ hjá SRR í síma 525 5980 eđa á netfangiđ mvs-simennt@hi.is. Nýjum áskrifendum gefst kostur á ađ kaupa eldri rit á afsláttarverđi. Uppeldi og menntun er einnig fáanlegt í Bóksölu kennaranema, Stakkahlíđ, Bóksölu stúdenta, Hringbraut og í öllum stćrri bókaverslunum. Eldri árgangar tímaritsins eru nú komnir á vefinn timarit.is og yngri árgangar eru birtir á vef tímaritsins, međ eins árs birtingartöf.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband